Efnir til „allsherjar afvopnunar“ eftir tvær mannskæðar skotárásir

Skot­vopna­lög­gjöf í Serbíu verður hert eftir að 17 létur lífið í tveimur skotárásum sem gerðar voru í land­inu með stuttu milli­bili í vik­unni. Aleksandar Vucic, for­seti Serbíu ætlar að efna til „alls­herjar afvopn­unar“.

Efnir til „allsherjar afvopnunar“ eftir tvær mannskæðar skotárásir
Hinna látnu minnst Ungur drengur minn­ist grunn­skóla­nem­anna átta og örygg­is­varðar sem létu lífið í skotárás í grunn­skóla í Belgrad í vik­unni. Mynd: AFP

Ný byssu­leyfi verða ekki gefin út tíma­bundið í Serbíu og eft­ir­lit með skot­vopna­eig­endum verður hert eftir að 17 létu lífið í tveimur skotárásum í höf­uð­borg­inni Belgrad og nágranna­borg­inni Mladenovac í vik­unni. 

Öryggisvörður fórnaði lífi sínu fyrir börnin

Átta nem­endur og örygg­is­vörður létu lífið í skotárás í Vla­d­is­lav Ribnikar-grunn­skól­anum í Belgrad á mið­viku­dag. Sex nem­endur og kenn­ari særð­ust í árásinni. Byssu­mað­ur­inn er 14 ára nem­andi sem mætti með byssu föður síns í skól­ann.

Örygg­is­vörð­ur­inn sem lést í árásinni kom að öllum lík­indum í veg fyrir fleiri dauðs­föll með því að kasta sér fyrir byssu­mann­inn þegar hann hleypti af skotum. „Þegar dóttir mín sá örygg­is­vörð­inn verða fyrir skoti hljóp hún aftur inn í kennslu­stof­una. Hún var dauð­hrædd,“ segir Astrid Merlini, móðir stúlku við skól­ann. 

HræðslaMikil skelf­ing greip um sig í skól­anum þegar 14 ára nem­andi við skól­ann hóf að skjóta á nem­endur og kenn­ara af handa­hófi.

Skaut á fólk úr bíl á ferð

Önnur skotárás varð á fimmtu­dag þegar maður skaut á fólk með sjálf­virkri byssu úr bíl á ferð og stakk svo af. Árásin átti sér stað í grennd við bæinn Mladenovac, um sex­tíu kíló­metra sunnan við Belgrad. Átta lét­ust í árásinni og lög­regla hand­tók byssu­mann­inn í gær­morgun. 

Skot­vopna­lög­gjöf er mjög ströng í Serbíu og skotárásir líkt og þessar eru afar fátíðar. Hins vegar er fjöldi ólög­legra skot­vopna í umferð sem rekja má til stríðs­á­taka á 10. ára­tug síð­ustu aldar.

Þriggja daga þjóð­ar­sorg hefur verið lýst yfir í Serbíu og hefur Aleksandar Vucic, for­seti Serbíu, heitið því að afvopna Serbíu. Útgáfu nýrra byssu­leyfa hefur verið stöðvuð tíma­bundið og lög­regla mun á næst­unni mæta reglu­lega á heim­ili skráðra byssu­eig­enda og kanna hvort vopn séu geymd í læstum skápum. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár