Forsætisráðherra boðar fund vegna Súðavíkurflóðs

Krafa aðstand­enda þeirra sem fór­ust í Súða­vík­ur­flóð­inu um skipan rann­sókn­ar­nefndar var send for­sæt­is­ráð­herra og þing­nefnd í síð­ustu viku. For­sæt­is­ráð­herra hefur þegar boðað lög­mann aðstand­end­anna á sinn fund. Formaður þing­nefnd­ar­innar segir ein­boðið að setja slíka nefnd á fót. Fyrir því séu bæði efn­is­leg og sið­ferð­is­leg rök.

Forsætisráðherra boðar fund vegna Súðavíkurflóðs

„Það er ánægju­efni að for­sæt­is­ráð­herra skuli bregð­ast svo skjótt við erind­inu,“ segir Sigurður Örn Hilm­ars­son hæsta­rétt­ar­lög­maður í sam­tali við Heim­ild­ina. Þrettán manns, aðstand­endur fólks sem lést í snjó­flóð­unum í Súðavík í jan­úar árið 1995, sendu Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra beiðni þann 20. apríl, þar sem óskað var eftir fundi með Katrínu sem brást fljótt við erind­inu og boð­aði lög­mann hóps­ins á fund í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í byrjun næstu viku.  

Erindi hóps­ins við stjórn­völd er að skipuð verði rann­sókn­ar­nefnd af hálfu alþingis, til að skoða þátt yfir­valda í snjó­flóð­inu. Í nýlegri rann­sókn Heim­ild­ar­innar komu fram nýjar upp­lýs­ingar um vit­neskju yfir­valda um snjó­flóða­hættu á Súðavík, sem ekki var brugð­ist við. Fjórtán manns lét­ust í flóð­inu, þar af átta börn. Aðstand­endur reyndu ítrekað að fá þátt yfir­valda í flóð­inu rann­sak­aðan, en án árang­urs.

„Enn er tæki­færi til að draga lær­dóm af snjó­flóð­inu í Súðavík“
Úr bréfi lög­manns þrett­án­menn­ing­anna

„Til­gangur slíkrar rann­sóknar á aðdrag­anda og eft­ir­málum snjó­flóðs­ins væri meðal ann­ars að rann­saka máls­at­vik, meta kerf­is­læg vanda­mál sem voru, og eru hugs­an­lega enn, til staðar er varða snjó­flóða­varnir, og hugs­an­legan þátt þeirra í því mann­tjóni sem varð í Súðavík,“ segir í erindi lög­manns­ins fyrir hönd hóps­ins, þar sem jafn­framt er vísað til þess að rann­sóknin hafi af þessum sökum mikla almenna þýð­ingu.

„Umbjóð­endur mínir telja að gera megi athuga­semdir við nær alla atburða­rás­ina í kringum snjó­flóðið,“ segir í erind­inu þar sem vísað er til þess að fyrst núna, 28 árum eftir flóðið, hafi mikið af þessum upp­lýs­ingum komið fram í fyrsta sinn, í rann­sókn Heim­ild­ar­innar og gagna­öflun aðstand­enda þeirra sem lét­ust.

Í erind­inu er farið yfir upp­lýs­ingar og gögn sem sýna þá fjöl­mörgu ann­marka sem voru á við­brögðum yfir­valda, bæði stuttu fyrir og eins árin og ára­tug­inn á undan snjó­flóð­inu. Yfir­vof­andi snjó­flóða­hætta er sögð hafa verið yfir­völdum ljós löngu áður en flóðið féll, en engu að síður hafi sú hætta verið van­metin í opin­beru hættu­mati, þvert á upp­lýs­ingar sem fyrir lágu.

„Þó hefur áfallið orðið umbjóð­endum mínum enn þung­bær­ara eftir að nýjar upp­lýs­ingar komu fram á sjón­ar­sviðið sem sýna meðal ann­ars fram á vit­neskju yfir­valda um snjó­flóða­hættu á hluta þess svæðis sem snjó­flóðið féll á árið 1995, en var utan skil­greinds hættu­mats. Hættu­matið var þannig haldið alvar­legum ann­mörkum að þessu leyti.“

„Per­sónu­lega finnst mér ein­boðið að setja slíka nefnd á fót“
Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir
for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis

Vísað er til þess hvernig yfir­völd hafi van­rækt að verja byggð­ina, hunsað aðvör­un­ar­orð gegn frek­ari íbúa­byggð, og látið hjá líða að koma upp­lýs­ingum um yfir­vof­andi hættu til íbú­anna kvöldið og nótt­ina fyrir flóðið.

„Af fram­an­greindu er ljóst að hægt er að gera alvar­legar athuga­semdir við atburða­rás­ina alla sem átti sér stað í aðdrag­anda snjó­flóðs­ins. Reglum um boð­leiðir og full­nægj­andi við­var­anir var ekki fylgt í aðdrag­anda flóðs­ins. Þá voru ann­markar á því hættu­mati sem lá fyrir og rangar upp­lýs­ingar og for­sendur lagðar til grund­vallar þess sem varð til þess að mann­tjón hlaust af.“

Einboðið og siðferðilega rétt

Erindið sem lög­maður þrett­án­menn­ing­ana sendi for­sæt­is­ráð­herra var einnig sent stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd alþingis, enda fer nefndin með umsjón og fram­kvæmd slíkra rann­sókna, sam­kvæmt lögum, þó alþingi geti eftir sem áður sjálf ákveðið slíka skipun. Í sam­tali við Heim­ild­ina seg­ist Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, hafa fengið í hendur erindi hóps­ins. 

Formaður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar alþingisÞórunn Svein­bjarn­ar­dóttir þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar er for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar alþingis, sem fer með það hlut­verk að útfæra og leggja línur um fram­kvæmd rann­sókn­ar­nefnda sem skip­aðar eru af alþingi.

„Per­sónu­lega finnst mér ein­boðið að setja slíka nefnd á fót vegna þess að umfjöllun Heim­ild­ar­innar leiðir ýmis­legt í ljós sem ég er viss um að hafi almennt ekki verið á vit­orði margra. Hins vegar er ég líka á þeirri skoðun að eft­ir­lif­endur og aðstand­endur þeirra sem þarna fór­ust eigi sið­ferði­legan rétt til þess að aðdrag­and­inn og við­brögðin við ham­för­unum séu rann­sökuð til hlítar,“ sagði Þórunn.

Hefur ítrekað verið neitað

Aðstand­end­urnir þrettán sem standa að baki beiðn­inni eru full­trúar sex húsa við Túngötu og Nesveg í Súðavík. Aðstand­endur þeirra 14 ein­stak­linga sem lét­ust í flóð­inu. Um er að ræða börn, for­eldra og systk­ini hinna látnu. Hluti þessa hóps hefur áður – ítrekað – reynt að fá fram rann­sókn á þætti yfir­valda í þeim mikla mann­skaða sem varð í flóð­inu, en án árang­urs.

Strax eftir flóðið fór lög­maður þeirra fram á að skipuð yrði opin­ber rann­sókn­ar­nefnd vegna þeirra. Þeirri beiðni var hafnað af yfir­völdum sem létu sér nægja að láta Almanna­varnir rík­is­ins vinna skýrslu um flóðin. Sú skýrsla kom út ári eftir flóðið og var strax harð­lega gagn­rýnd. Ekki síst sú full­yrð­ing í skýrsl­unni að þrátt fyrir marg­vís­leg mis­tök, hafi í raun ekk­ert getað forðað því mann­tjóni sem var, þar sem húsin sem fóru undir flóðið hafi öll verið utan skil­greinds hættu­svæðis. Sú full­yrð­ing var ein­fald­lega röng.

28 ára biðSigríður Rannveig Jóns­dóttir, Haf­steinn Númason og Maya Hrafn­hild­ar­dóttir eru meðal þeirra þrettán sem standa að baki beiðni um skipan rann­sókn­ar­nefndar vegna Súða­vík­ur­flóðs­ins. Þau hafa beðið þess á þriðja ára­tug að óháð rann­sókn færi fram á þætti yfir­valda í flóð­inu, sem kost­aði 14 manns­líf, meðal þeirra voru dóttir Sigríðar, þrjú barna Haf­steins og for­eldrar Mayu.

Á þetta og fleiri atriði bentu aðstand­endur strax árið 1996 og ósk­uðu eftir því að yfir­völd fengju óháðan aðila til rann­sókn­ar­innar. Almanna­varnir rík­is­ins væru enda að rann­saka eigin verk og því ekki til þess bær að gera mál­inu skil. Dóms­mála­ráðu­neytið hafn­aði þeirri beiðni og vís­aði á Rík­is­sak­sókn­ara sem vís­aði mál­inu frá sér, það gerði Umboðs­maður líka og Rík­is­sak­sókn­ari öðru sinni árið 2004. 

Í bréfi lög­manns þrett­án­menn­ing­anna til for­sæt­is­ráð­herra er vísað til þess hvernig aðstand­endum var ítrekað neitað um þá eðli­legu kröfu að óháður aðili rann­sak­aði málið. Lög­reglu­rann­sókn hafi ekki einu sinni farið fram, líkt og kveðið var á um í lögum. Þetta hafi valdið aðstand­endum sem glímdu flestir við ólýs­an­lega sorg og mikið áfall, óþarfa sárs­auka og erf­iði. 

„Ábati og til­gangur slíkrar rann­sóknar hefði jafn­framt getað leitt skýrt í ljós hvað fór úrskeiðis í sam­skiptum og við­brögðum við­bragðs­að­ila, meðal ann­ars með það fyrir augum að koma í veg fyrir að sam­bæri­legir atburðir end­ur­tækju sig,“ segir í erindi hóps­ins til for­sæt­is­ráð­herra, þar sem bent er á  að „enn [sé] tæki­færi til að draga lær­dóm af snjó­flóð­inu í Súðavík“.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Súðavíkurflóðið

Alþingi skipar rannsóknarnefnd um Súðavíkurflóðið
FréttirSúðavíkurflóðið

Alþingi skipar rann­sókn­ar­nefnd um Súða­vík­ur­flóðið

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur sam­þykkt beiðni aðstand­enda þrettán þeirra sem fór­ust í snjó­flóð­inu í Súðavík í jan­úar árið 1995 um að fram fari opin­ber rann­sókn á aðdrag­anda og eft­ir­málum flóðs­ins. Málið fer til þing­for­seta og svo þings­ins í heild. Alls lét­ust fjórtán þegar snjó­flóð féll á byggð­ina í Súðavík snemma morg­uns 16. jan­úar, þar af átta börn.
Stíga fyrstu skrefin vegna mögulegrar rannsóknarnefndar vegna Súðavíkurflóðsins
FréttirSúðavíkurflóðið

Stíga fyrstu skrefin vegna mögu­legrar rann­sókn­ar­nefndar vegna Súða­vík­ur­flóðs­ins

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis ákvað í morgun að hefja gagna­öflun vegna mögu­legrar rann­sókn­ar­nefndar á vegum Alþingis vegna aðdrag­anda og eft­ir­mála snjó­flóðs­ins sem féll árið 1995 í Súðavík. Nið­ur­staða þeirrar vinnu verður grund­völlur ákvörð­unar um hvort leggja eigi til skipun rann­sókn­ar­nefndar.
Katrín bendir þinginu á að rannsaka aðdraganda og eftirmál Súðarvíkurflóðanna
FréttirSúðavíkurflóðið

Katrín bendir þing­inu á að rann­saka aðdrag­anda og eft­ir­mál Súð­ar­vík­ur­flóð­anna

Í bréfi sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sendi Þórunni Svein­bjarn­ar­dóttur, for­manni stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, seg­ist hún telja að rann­sókn­ar­nefnd á vegum Alþingis væri til þess fallin að skapa traust um nið­ur­stöður rann­sóknar á aðdrag­anda og eft­ir­málum snjó­flóð­anna í Súðavík 1995. Flóðin hafi verið reið­ar­slag fyrir íslenskt sam­fé­lag.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár