Rannsókn Fjármálaeftirlitsins á Íslandsbanka stendur enn yfir

Íslands­banki hefur síðan snemma í jan­úar átt í við­ræðum við Fjár­mála­eft­ir­litið um sekt­ar­greiðslu vegna lög­brota sem bank­inn er tal­inn hafa framið í tengslum við sölu á hlut rík­is­ins í honum fyrir rúmum þrettán mán­uðum síðan. Í árs­reikn­ingi bank­ans kom fram að hann hafi lagt til hliðar fjár­muni til að greiða sekt­ina og að hann myndi ljúka við að setja fram sjón­ar­mið sín fyrir miðjan febr­úar. Engar upp­lýs­ingar fást um stöðu máls­ins, næstum tveimur mán­uðum síðar.

Rannsókn Fjármálaeftirlitsins á Íslandsbanka stendur enn yfir

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands segir að rann­sókn þess á til­teknum þáttum sem varða sölu rík­is­ins á 22,5 pró­sent eign­ar­hlut í Íslands­banka í mars í fyrra standi enn yfir. Eft­ir­litið seg­ist ekki geta veitt neinar upp­lýs­ingar um hvar rann­sóknin sé stödd né hvenær sé von á því að nið­ur­stöður hennar verði birtar. Þá sé ekki hægt að veita upp­lýs­ingar um það ferli sem átt hafi sér stað milli Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og Íslands­banka eftir að við­ræður um sátt í mál­inu hófust í jan­úar síð­ast­liðnum.

Þetta kemur fram í svari frá Sigurði Val­geirs­syni, upp­lýs­inga­full­trúa eft­ir­lits­ins, við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar um stöðu mála. 

Heim­ildin hefur áður greint frá því að frum­mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á ætl­uðum brotum Íslands­banka í sölu­ferl­inu hafi legið fyrir seint á síð­asta ári og það kynnt Íslands­banka á þeim tíma. Nið­ur­staða frum­mats­ins var sú að Íslands­banki hafi gerst brot­legur við lög en hvorki eft­ir­litið né Íslands­banki hafa viljað greina frá því hvaða lög …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár