Í bægslið Starfs­maður Hvals hf. reynir að krækja í ósprung­inn sprengju­skutul sem hæfði lang­reyð­arkú í bægslið á ver­tíð­inni síð­asta sumar. Skjóta þurfti öðrum skutli í dýrið til að aflífa það. Kýrin reynd­ist kelfd. Mynd: Arne Feuerhahn

Hefð fyrir því að „þrjóskir, gamlir karlar“ hafi mikil áhrif á Íslandi

Það er auð­velt að beina reiði sinni að Krist­jáni Lofts­syni þegar kemur að hval­veiðum „en hann mun ekki breyt­ast“ svo betra er að ein­beita sér að stjórn­völdum sem gera honum kleift að stunda veið­arnar, segir Heiða Kristín Helga­dóttir, verð­andi fram­kvæmda­stjóri Sjáv­ar­kla­s­ans.

Hvalir munu ekki éta allan fisk­inn í sjónum verði veiðum á þeim hætt. Rann­sóknir sýna reyndar hið gagn­stæða enda leika þeir lyk­il­hlut­verk í því að auka fæðu­fram­boð fiska. Þeir binda líka ógrynni af koltví­oxíði, loft­teg­und­inni sem þjóðir heims eru að klóra sér í höfð­inu yfir hvernig megi fanga, farga og draga úr losun á. Þar fyrir utan er nán­ast ógern­ingur að veiða hvali með mann­úð­legum hætti, líkt og lög og reglur gera ráð fyrir.

En þrátt fyrir öll þessi rök, sem mörg hver eru studd vís­inda­legum rann­sóknum, eru þeir enn veiddir hér við land. Hvers vegna?

Þessi eini karlmaður

„Þær eru stund­aðar vegna eins karl­manns sem hefur mikil völd og áhrif,“ sagði kvik­mynda­gerð­ar­konan Anahita Babaei á ráð­stefnu um veið­arnar sem fram fór í Norræna hús­inu í síð­ustu viku. 

Þessi karl­maður er Kristján Loftsson, for­stjóri Hvals hf., eina aðil­ans sem hefur leyfi til veið­anna við Ísland.

Fund­ar­stjórnKatrín Odds­dóttir lög­fræð­ingur. …
Kjósa
45
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Pétur Óðinsson skrifaði
    Góð grein og upplýsandi.
    1
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Heimildir!
    0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Heimildin bíður ekki upp á að leiðrétta færslur.
    Ég er persónulega alfarið á móti því að myrða hvali.
    En viltu ekki úskýra þessa fullyringu þína nánar ?
    akk fyrir góða grein.
    Viltu ekki útskýra þetta nánar ?
    "Þeir binda líka ógrynni af koltvíoxíði, lofttegundinni sem þjóðir heims eru að klóra sér í höfðinu yfir hvernig megi fanga"
    Þetta er fullyring sem þarf útskýringu.
    Þú getur ekki kastað svona fram án stuðnings!
    1
    • Martin Swift skrifaði
      Ég styð heilshugar það að greinar vísi í ítarefni eftir því sem efni standa til. Hér er greinarhöfundur hins vegar að taka viðtal við nokkra sérfræðinga sem eru þar með heimildin.

      Viljir þú ítarefni geturðu eflaust fundið netföng viðkomandi sérfræðinga og spurt hvort þau geti deilt slíku með þér. Hins vegar er oft hægt að finna svona lagað á eigin spýtur; þetta hér fann ég t.a.m. með 10 sekúndna netleit:
      https://www.imf.org/en/Publications/fandd/issues/2019/12/natures-solution-to-climate-change-chami
      1
  • SB
    Sigurður Bjarnason skrifaði
    Afhverju virkar ekki rauði hnappurinn?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár