Eigandi Arnarlax greiðir út 32 milljarða króna arð en kvartar yfir skattlagningu

Norski lax­eld­is­ris­inn Salmar AS, eig­andi Arnarlax á Bíldudal, hefur greitt út nærri 100 millj­arða króna arð á síð­ustu þremur árum. Fyr­ir­tækið kvartar á sama tíma yfir auk­inni skatt­lagn­ingu í Noregi og segir ekki rétt að arð­semi félags­ins sé of mikil.

Eigandi Arnarlax greiðir út 32 milljarða króna arð en kvartar yfir skattlagningu
Stærsti hlut­haf­inn Gustav Witzoe yngri er stærsti hlut­hafi Arnarlax í gegnum eign­ar­hald sitt á Salmar. Hann er jafn­framt rík­asti maður Noregs. Faðir hans og nafni stofn­aði Salmar á sínum tíma.

Eigandi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax á Bíldudal stefnir á að greiða út 32 millj­arða króna arð, 2,9 millj­arða norskra króna, á þessu ári eftir að hafa hagn­ast um tæp­lega 50 millj­arða króna í fyrra. Fyr­ir­tækið, norski lax­eld­is­ris­inn Salmar AS, kvartar samt yfir auk­inni skatt­heimtu í Noregi og segir að gjald­heimtan geti komið niður á starf­semi félags­ins. Þetta kemur fram í árs­upp­gjöri Salmar AS  og kynn­ingu á því sem gerð voru opin­ber í Noregi í lok febr­úar. Arnarlax á og rekur sjó­kvíar á Vest­fjörðum þar sem eld­is­lax er rækt­aður. 

Salmar AS er meiri­hluta­eig­andi í Arn­ar­laxi með rúm­lega 51 pró­sent af hluta­fénu í norsku móð­ur­fé­lagi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins, Icelandic Salmon AS. Næst stærsti hlut­hafi Arnarlax er svo líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi með 7,16 pró­senta hlut. Stjórn­ar­for­maður Arnarlax, Kjartan Ólafsson, er fjórði stærsti hlut­haf­inn með rúm­lega 3,2 pró­senta hlut. Arnarlax er stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki á Íslandi og stefnir félagið félagið á 16 þús­und tonna fram­leiðslu hér á landi á þessu ári sam­kvæmt upp­gjör­inu. Fyr­ir­tækið fram­leiddi sama magn í fyrra.

Stærsti eig­andi Salmar eru svo aftur fyr­ir­tækið Kverva Industries sem er í meiri­hluta­eigu sonar stofn­anda Salmar, Gustav Witzoe yngri, sem er rík­asti maður Noregs. Hann er því stærsti eig­andi Arnarlax á Íslandi.

„For­sendur skatt­lagn­ing­ar­innar byggja á þeirri for­sendu að lax­eld­is­iðn­að­ur­inn skapi of mikla arð­semi miðað við þær áhættur sem iðn­að­ur­inn felur í sér en þetta er ekki rétt.“
Úr kynn­ingu á árs­upp­gjöri Salmar AS

Segja skattlagningu koma í veg fyrir umhverfisvænni lausnir

Í árs­reikn­ingi Salmar kemur meðal ann­ars fram að vegna auk­innar, boð­aðrar skatt­lagn­ingar í Noregi, þá geti fyr­ir­tækið ekki ein­beitt sér af sama krafti að því að þróa aflands­lausnir í lax­eldi. Með slíkum aflands­lausnum yrði eldið flutt út á rúm­sjó og úr fjörðum landa eins og Noregs og Íslands. Þetta myndi koma í veg fyrir mörg af helstu umhverf­is­á­hrifum lax­eldis í sjó­kvíum, meðal ann­ars mögu­lega erfða­blöndun við villta laxa­stofna sökum slysa­slepp­inga úr sjó­kvíum. Slíkar slysa­slepp­ingar hafa átt sér stað í Noregi og á Íslandi.   Skatt­lagn­ingin á fisk­eldið á að aukast úr 22 pró­sentum í 62 pró­sent.  

Áhuga­vert er að Salmar stilli afleið­ingum skatt­lagn­ing­ar­innar upp með þessum hætti þar sem lax­eld­is­fyr­ir­tækið er að nota hagnað sinn af lax­eldi í sjó­kvíum til að fjár­magna þróun fyr­ir­tæk­is­ins á umhverf­is­vænni lausnum úti á rúm­sjó. Laxeldið sem Salmar stundar á Íslandi er lax­eldi í fjörðum sem aflandseldið á að koma í stað­inn fyrir með tíð og tíma, líkt og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Salmar hefur sagt.

Stjórn­ar­for­mað­ur­inn fyrr­ver­andi, Atle Eide, hefur látið hafa það eftir sér að 2030 verði lax­eldi í sjó­kvíum ekki lengur stundað vegna umhverf­is­á­hrifa þess. „Við munum lík­lega ekki sjá hefð­bundnar, alveg opnar sjó­kvíar neins staðar árið 2030 [...] Kröfur sam­fé­lags­ins hafa breyst svo mikið og tækni­þró­unin mun gera það arð­bært að breyt­ast,“ sagði Atle Eide í við­tali við sjáv­ar­út­vegs­blaðið Intra­fish árið 2021. 

„Vannýttir möguleikar“ á Íslandi

Þrátt fyrir þessa spá Atle Eide um enda­lok sjó­kvía­eldis, og þrátt fyrir að fyr­ir­tækið sé að fjár­festa í öðrum lausnum fjarri ströndum landa, þá sér Arnarlax samt sem áður mikla vaxt­ar­mögu­leika á Íslandi. Í kynn­ing­unni á upp­gjöri Salmar segir meðal ann­ars: „Van­nýttir mögu­leikar í fyr­ir­liggj­andi leyfum.“

Með þessu er meðal ann­ars átt við að Arnarlax á sam­tals fram­leiðslu­leyfi fyrir 23.700 tonnum af eld­is­laxi og á því eftir að hefja fram­leiðslu á sam­tals 6.700 tonnum af eld­is­laxi út frá fyr­ir­liggj­andi leyfum. Þá er til­greint í kynn­ingu á upp­gjöri Arnarlax fyrir síð­asta árs­fjórð­ung 2022 að félagið sé með frek­ari umsóknir um leyfi í ferli, meðal ann­ars 10 þús­und tonn  í Ísa­fjarð­ar­djúpi auk 4.500 tonn í Arn­ar­firði. 

Í þess­ari kynn­ingu segir Arnarlax líka, þrátt fyrir að ljóst sé að fyr­ir­tækið og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Salmar AS, telja sjó­kvía­eldi ekki vera fram­tíð­ar­lausn í fisk­eldi að Ísland geti orðið eitt stærsta fram­leiðslu­land heims­ins í slíku eldi. 

Einn stærsti hlut­haf­innKjartan Ólafsson er fjórði stærsti hlut­hafi Arnarlax og hefur hann talað fyrir því að Ísland geti fram­leitt allt að 500 þús­und tonn á ári. Samtímis þróar eig­andi Arnarlax aðrar umhverf­is­vænni lausnir í fisk­eldi en notkun á sjó­kvíum.

Salmar: Forsendur skattlagningarnar rangar

Nokkuð hefur verið fjallað um afleið­ing­arnar af þess­ari auknu skatt­lagn­ingu í Noregi í fjöl­miðlum hér á landi og hefur stjórn­ar­for­maður Arnarlax, Kjartan Ólafsson, meðal ann­ars sagt að hún gæti meðal ann­ars falið í sér tæki­færi fyrir Íslend­inga til að fram­leiða meira af eld­is­laxi.

Orðrétt segir um þessar afleið­ingar af skatt­lagn­ing­unni í árs­reikn­ingi Salmar AS. „Í Noregi hefur rík­is­stjórnin boðað auð­linda­skatt á fisk­eldi sem taka á gildi frá upp­hafi árs 2023. Ef nýja skatt­lagn­ingin verður sam­þykkt af þing­inu mun hún hafa mikil áhrif á mögu­leika á fjár­fest­ingum og tækninýj­ungum í fisk­eld­inu í Noregi. SalMar sendi frá sér ítar­legt svar í hinu opin­bera ferli sem málið fór í og lýsti yfir harðri and­stöðu við skatt­lagn­ing­una.“

Samkvæmt því sem Salmar segir þá eru for­sendur skatt­lagn­ing­ar­innar rangar þar sem ekki sé rétt að arð­greiðslur úr grein­inni séu of háar miðað við þá áhættu sem fjár­fest­arnir taka. Um þetta segir í árs­reikn­ingnum: „For­sendur skatt­lagn­ing­ar­innar byggja á þeirri for­sendu að lax­eld­is­iðn­að­ur­inn skapi of mikla arð­semi miðað við þær áhættur sem iðn­að­ur­inn felur í sér en þetta er ekki rétt. Og Salmar und­ir­strik­aði með afger­andi hætti að til­lög­urnar ætti að leggja til hliðar,“ segir í árs­reikn­ingnum. 

Nærri 100 milljarða arður á þremur árum 

Þessi stað­hæf­ing í árs­upp­gjöri Salmar er sér­stak­lega áhuga­verð í ljósi þess að á síð­ast­liðnum árum hefur félagið greitt út tugi millj­arða króna í arð á hverju ein­asta ári. Upphæðin var 32 millj­arðar króna í fyrra líka og tæpir 30 millj­arðar króna árið á undan. Samtals er því um að ræða nærri 100 millj­arða króna arð­greiðslur til hlut­hafa á ein­ungis þremur árum.

Þegar horft er á tekjur fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra, sem námu rúm­lega 20 millj­örðum norskra króna, þá nemur arð­greiðslan út úr félag­inu rúm­lega 14 pró­sentum af tekjum félags­ins. Arð­greiðslan nemur sömu­leiðis rúm­lega 78 pró­sentum af heild­ar­hagn­aði fyr­ir­tæk­is­ins á árinu en hann nam 3,7 millj­örðum norskra króna. 

Þrátt fyrir þetta telur Salmar AS samt ekki að rekstur félags­ins geti staðið undir þeirri auknu skatt­lagn­ingu á fisk­eldi sem norska ríkið hefur boðað. 

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár