Dans getur bæði verið íþrótt og list, líkamsrækt eða aðeins skemmtun. Eða bara allt í senn. Það er þó ekki aðeins með því að hreyfa sinn eigin líkama eða sitja í leikhússal sem njóta má dansins. Litlu síðra getur verið að liggja grafkyrr og horfa á eina af þeim hundruð dansmynda sem framleiddar hafa verið í Hollywood og víðar.
Hér er listi yfir þrjár kvikmyndir sem myndu vel duga í það verk en eru líklega ekki þær sem þér dettur fyrst í hug.
1.
Strictly Ballroom (1992)
Fyrsta kvikmynd ástralska leikstjórans Baz Luhrmann, sem síðar átti eftir að slá í gegn með kvikmyndinni Moulin Rouge.
Dansíþróttamaðurinn Scott Hastings, leikinn af Paul Mercurio, er aðalpersóna myndarinnar, sem fjallar um baráttu hans fyrir frelsi á dansgólfinu. Sögusviðið er skipulagður heimur samkvæmisdansíþróttarinnar í Ástralíu, þar sem hann er vonarstjarnan í dansskóla foreldra sinna. Óreyndur byrjandi í dansíþróttinni, leikin af Töru Morice, sem aðeins …
Athugasemdir