Tafði ekki fyrir eigin brottvísun þegar hann neitaði að fara í COVID-próf

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur féllst ekki á að Suleiman Al Masri hefði vís­vit­andi tafið fyrir brott­vísun sinni úr landi með því að mæta ekki í Covid-19 próf. Lögmaður hans, Helgi Þor­steins­son Silva, segir dóm hér­aðs­dóms for­dæm­is­gef­andi og að stjórn­völdum sé ekki stætt á að vísa um 200 hæl­is­leit­endum úr landi.

Tafði ekki fyrir eigin brottvísun þegar hann neitaði að fara í COVID-próf
For­dæm­is­gef­andi dómur Dómurinn í máli Suleimans Al Masri, sem sést hér á mynd, er for­dæm­is­gef­andi fyrir fjölda flótta­manna í sömu stöðu að mati lög­manns hans. Mynd: Aðsend

Kæru­nefnd útlend­inga­mála braut gegn hæl­is­leit­enda með því að synja honum um end­ur­upp­töku á umsókn hans um alþjóð­lega vernd hér á landi. Ákvörðun nefnd­ar­innar var byggð á því að hæl­is­leit­and­inn, Palest­ínu­mað­ur­inn Suleiman Al Masri, hefði tafið fyrir brott­vísun sinni úr landi með því að mæta ekki til Covid-19 sýna­töku. Á það féllst Hér­aðs­dómur Reykja­víkur ekki og ógilti úrskurð kæru­nefnd­ar­innar. Lögmaður Al Masri segir dóm­inn for­dæm­is­gef­andi fyrir þann stóra hóp hæl­is­leit­enda sem ílengd­ist hér á landi vegna kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins og ljóst sé að stjórn­völdum sé ekki stætt á að vísa þeim hópi úr landi án efn­is­með­ferðar umsókna.

Hópurinn taldi fyrst um 300 umsækj­endur um alþjóð­lega vernd og var haft eftir Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­ráð­herra að fólkið hefði dvalið ólög­lega á Íslandi. Síðar var tekin ákvörðun um að vísa ekki barna­fjöl­skyldum úr landi en þá stóðu eftir tæp­lega 200 manns. Sökum kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins var fólkið hins vegar ekki flutt af landi brott. Þau höfðu dvalið hér í yfir tólf mán­uði sem að öllu jöfnu hefði átt að þýða að mál þeirra fengju efn­is­með­ferð hér á landi. Á það vildu stjórn­völd hins vegar ekki fall­ast.

Naut ekki aðstoðar túlks eða lögmanns

Í máli Al Masri, sem er einn úr þeim stóra hópi sem vísa átti úr landi, var því haldið fram af hálfu hins opin­bera að hann bæri sjálfur ábyrgð á þeim töfum sem urðu á því að hægt væri að senda hann af landi brott, með því að láta undir höfuð leggj­ast að mæta til Covid-19 sýna­töku. Án þeirrar sýna­töku hefði ekki verið hægt að senda hann til Grikk­lands, þar sem hann hafði þegar fengið alþjóð­lega vernd. Byggði upp­haf­leg ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar um að taka umsókn Al Masri ekki til efn­is­með­ferðar einmitt á því að hann hefði þegar fengið vernd í Grikk­landi.

„Telur dóm­ur­inn að ekki hafi verið rétt­mætt að leggja til grund­vallar að stefn­andi bæri ábyrgð á þeirri töf sem varð á með­ferð máls hans“
úr dómi hér­aðs­dóms

Al Masri sjálfur og Helgi Þor­steins­son Silva, lög­fræð­ingur hans, héldu því hins vegar fram fyrir dómi að honum hefði ekki verið gerð nægj­an­lega skýr grein fyrir því hvert hann ætti að mæta til sýna­töku né heldur hefði verið útskýrt fyrir honum að með því að mæta ekki mætti túlka það svo að hann hefði með vís­vit­andi hætti reynt að tefja mál sitt. Hann hefði ekki haft túlk við­staddan þegar full­trúar rík­is­lög­reglu­stjóra hefðu mætt til að gera honum grein fyrir því að hann ætti að mæta til sýna­tök­unnar og skjal þess efnis að hann sýndi ekki sam­starfsvilja, sem lög­reglu­menn hefðu fyllt út, hefði ekki verið á tungu­máli sem væri honum skilj­an­legt. Þá hefði hann ekki fengið að kalla til lög­mann til að bera umrætt skjal undir. 

Mikil tíð­indiHelgi Þor­steins­son, lög­maður Al Masri, segir dóm­inn mikil tíð­indi og að hann hafi bein áhrif á stöðu fjölda hæl­is­leit­enda.

Al Masri sótti um end­ur­upp­töku á máli sínu hjá kæru­nefnd útlend­inga­mála en var hafnað með fyrr­greindum rökum, þrátt fyrir að meira en tólf mán­uðir hafi verið liðnir frá því að hann fyrst sótti um vernd hér á landi. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur féllst sem fyrr segir ekki á rök kæru­nefnd­ar­innar. Í dóms­orði segir: „Að öllu fram­an­greindu virtu telur dóm­ur­inn að ekki hafi verið rétt­mætt að leggja til grund­vallar að stefn­andi bæri ábyrgð á þeirri töf sem varð á með­ferð máls hans og leiddi til þess að ekki varð af flutn­ingi hans innan 12 mán­aða frests­ins. Var úrskurður kæru­nefndar útlend­inga­mála að þessu leyti byggður á efn­isann­marka sem telst veru­legur. Þegar af þeirri ástæðu verður fall­ist á kröfu stefn­anda um að ógiltur verði úrskurður nefnd­ar­innar frá 18. nóv­em­ber 2021 þar sem synjað var beiðni hans um end­ur­upp­töku máls­ins.”

Helgi Þor­steins­son, lög­maður Al Masri, segir að dóm­ur­inn sé stór­tíð­indi fyrir þennan hóp hæl­is­leit­enda sem til stóð að vísa af landi brott, en mörgum þeirra hefði verið synjað um end­ur­upp­töku og efn­is­með­ferð á svip­uðum for­sendum og Al Masri. Dómurinn sé því for­dæm­is­gef­andi. „Að fengnum dómnum er ljóst að stjórn­völdum er ekki stætt á öðru en að bregð­ast við og koma í veg fyrir mestu fjölda­brott­vís­anir Íslands­sög­unnar,“ segir Helgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár