Joðtöflur uppseldar af ótta við beitingu kjarnavopna

Bæti­efna­töflur með joði seld­ust upp hjá Lyfju í síð­ustu viku. Ástæðan er ótti fólks við geislun af völdum hugs­an­legrar notk­unar Rússa á kjarna­vopnum. Joðtöflur verja skjald­kirtil­inn fyrir geislun en sökum fjar­lægðar er hæpið að nokkur þörf sé á notkun þeirra hér á landi.

Joðtöflur uppseldar af ótta við beitingu kjarnavopna
Hótanir Pútíns hafa áhrif Lítt dul­búnar hót­anir Pútíns Rúss­lands­for­seta um mögu­lega beit­ingu kjarna­vopna hafa haft þau áhrif að Evr­ópu­búar hafa keypt joðtöflur í miklu mæli. Mynd: Mikhail Klimentyev / SPUTNIK / AFP

Joðtöflur hafa selst upp í apó­tekum hér á landi síð­ustu daga, sökum ótta fólks við hugs­an­lega beit­ingu Rússa á kjarna­vopnum. Hið sama á við um fleiri Evr­ópu­lönd. Finnska rík­is­út­varpið greindi frá því í síð­ustu viku að joðtöflur væru upp­seldar í fjölda apó­teka þar í landi og síð­ast­lið­inn mánu­dag þáðu hátt í 30 þús­und Belgar ókeypis joðtöflur í apó­tekum í Belgíu.

Utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, Sergei Lavrov, sagði í dag að ef þriðja heims­styrj­öldin bryt­ist út myndi kjarn­orku­vopnum verða beitt og um gjör­eyð­ing­ar­stríð yrði að ræða. Bætti hann þar enn á þær hót­anir sem Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seti hefur haft uppi, meðal ann­ars með því að greina frá því að þær sveitir rúss­neska hers­ins sem fari með kjarn­orku­vopn hafi verið settar í við­bragðs­stöðu.

Varar við ger­eyð­ing­ar­stríðiSergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rússland, var­aði við því í dag að bryt­ist þriðja heims­styrj­öldin út yrði hún háð með kjarna­vopnum.

Joð ver skjaldkirtilinn

Joðtöflur eru not­aðar þar sem geislun verður til að verja skjald­kirtil fólks gegn henni. „Til­fellið er að þegar geisla­virkni verður, eins og til dæmis í Chernobyl slys­inu, losnar út í and­rúms­loftið geils­virkt joð. Þá eru joðtöflur not­aðar til að fylla skjald­kirtil­inn af joði og þá tekur hann miklu minna inn af hinum geisla­virka joði,“ segir Ari Jóhann­es­son inn­kirtla­fræð­ingur.

Ari Jóhann­es­son

Geisla­virkt joð berst í ein­hverjum mæli með and­rúms­lofti og hægt er að anda því að sér en það fer ekki síður í mat­væli og vatn. „Hættan er sú að það hafi slæmar heilsu­fars­legar afleið­ingar og valdi til að mynda krabba­meini í skjald­kirtli. Það sýndi sig enda eftir slysið í kjarn­orku­ver­inu í Fukus­hima í Japan, ekki löngu eftir slysið jókst þar krabba­mein í skjald­kirtli. Ég hugsa að fólk sem býr í nágrenni kjarn­orku­vera til að mynda eigi allt joðtöflur,“ segir Ari enn fremur. Hann telur hins vegar ólík­legt að mikil þörf sé á því fyrir Íslend­inga að birgja sig upp af joðtöflum í þessu skyni, en sömu upp­lýs­ingar var að fá hjá Geisla­vörnum rík­is­ins þegar Stundin leit­aði þangað.

Hræðsla fólks við það sem allir vona að verði ekki

Þór­bergur Egilsson, sviðs­stjóri smá­sölu og rekst­ar­stjóri versl­ana Lyfju, segir að það litla sem til hafi verið hjá fyr­ir­tæk­inu af joðtöflum hafi klár­ast í síð­ustu viku. „Það er ekki mikil sala á joðtöflum alla jafna. Við áttum ein­hverjar smá birgðir en ég held að það hafi horfið í síð­ustu viku. Ég held ég geti nán­ast stað­fest að það sé búið.“

Þór­bergur segir að bæði hafi það verið evr­ópskir túristar sem staddir voru hér á landi en einnig Íslend­ingar sem komu í apó­tek Lyfju og keyptu upp joðtöflur. Af sam­ræðum við fólk megi tengja kaupin beint við hræðslu fólks vegna yfir­lýs­inga Pútíns Rúss­lands­for­seta um mögu­lega beit­ingu kjarna­vopna. „Þetta er hræðsla fólks við það sem allir vona að verði ekki og fólk grípur þá til allra mögu­legra ráða. Kannski má líka rekja þetta til þess að Rússar tóku yfir Chernobyl og fólk ótt­ast það, af hverju hann ætli að dusta rykið þar. Það var það sem við heyrðum frá ein­hverjum okkar við­skipta­vina.“

„Við áttum ein­hverjar smá birgðir en ég held að það hafi horfið í síð­ustu viku“
Þór­bergur Egilsson
sviðs­stjóri smá­sölu og rekst­ar­stjóri versl­ana Lyfju

Þór­bergur segir að vissu­lega verði skoðað sér­stak­lega að kaupa inn meira af joðtöflum ef aukin eft­ir­spurn sé eftir þeim. Hins vegar eigi þetta ekki bara við á Íslandi hefur alls staðar. „Það er alls staðar verið að kaupa upp joð og það getur verið að það sé hrein­lega að verða upp­selt á heims­vísu. Þá getur verð auð­vitað farið að rísa einnig.“

Spurður hvort hann mæli með því að hinn almenni Íslend­ingur fylli lyfja­s­kápa sína af joðtöflum dregur Þór­bergur nú nokkuð úr því. „Ég myndi biðja fólk um að kynna sér virkni joðs betur áður en það hleypur út í apó­tek. Þar sem við erum núna þá höfum við frekar miklar efa­semdir um gagn­semi þess í þessum aðstæðum.“

Uppfært 2. mars.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Lyfju er ekki skortur á joðtöflum í land­inu þó þær séu upp­seldar hjá fyr­ir­tæk­inu. Umræddar töflur eru unnar úr þara úr Breiða­firði og nægt fram­boð ætti að vera af þeim hjá birgja. Þegar hafa verið gerðar ráð­staf­anir til að fá meira magn af umræddum töflum til sölu í apó­tek­unum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þór Saari skrifaði
    Það væri oft óskandi að blaðamenn kynntu sér málin betur í stað þess að skrifa svona sölupistla fyrir lyfsala. á Mánudag var þetta viðtal við varaformann félags lyfjafræðinga á RÚV um joð og gagnsemi þess. https://www.ruv.is/utvarp/spila/samfelagid/23617/7hl5pr/folk-kaupir-jod-til-geislavarna
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár