Börnin óttuðust talíbana á Íslandi og þorðu ekki út í myrkrið

Latifa Hamidi og fjöl­skylda hennar sem gerðu mis­heppn­aða til­raun til að flýja frá Kabúl um viku eftir að talí­banar réð­ust inn í borg­ina eru komin í skjól á Íslandi. Með í för var litli dreng­ur­inn sem varð eftir í Afganistan þegar for­eldr­arnir flúðu hingað. Ástvinir úti eru í lífs­hættu og börnin ótt­uð­ust að fara út í íslenskra myrkrið því þau voru hrædd um að þar gætu leynst talí­banar. Hung­ursneyð vofir yfir í Afganistan og hús­hitun er af skornum skammti. „Fólk er svangt og því er kalt,“ segir Latifa.

Börnin óttuðust talíbana á Íslandi og þorðu ekki út í myrkrið
Irfan, Latifa og Seta­ya­esh Latifa segir að hennar stærstu ham­ingju­stundir séu þegar börnin hlaupa um frjáls og óhrædd í Reykja­vík Mynd: Davíð Þór

„Ég nýt lífs­ins þegar ég sé hvað börnin mín eru glöð og að mestu áhyggju­laus,“ segir Latifa þegar hún tekur á móti blaða­konu og mynda­töku­manni á heim­ili sínu í Reykja­vík. Hún seg­ist þurfa að minna sig á að njóta þess að vera komin í skjól á Íslandi en hún hafi stöðugar áhyggjur af ást­vinum sínum sem enn eru í Kabúl. Hún segir líka að erf­iðar minn­ingar frá mis­heppn­uðum flótta­til­raunum fjöl­skyld­unnar herji á hana í svefni og vöku. „Ég fæ enn martraðir en reyni að sækja í þakk­lætið þegar mér líður verst því það er sterkt afl,“ segir Latifa og býður okkur að setj­ast inn í stofu. 

Eig­in­maður hennar, Mahmoodullh Dard­ma­nesh, er á fundi í skóla sonar þeirra þegar okkur ber að garði. Íbúðin er afar hlý­leg þó að þar séu fá hús­gögn. Úr stofu­glugg­anum og úr glugga í her­bergi barn­anna sést niður í stóran garð og þar skammt frá er …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár