Tveggja bragga móðir

Þann 2. jan­úar síð­ast­lið­inn opn­aði Höf­uð­stöðin þar sem áður voru kart­öflu­geymslur í Árbænum. Höf­uð­stöðin er umgjörð um mynd­list­ar­verkið Chromo Sapiens eftir Hrafn­hildi Arna­dóttur, lista­manns­ins Shoplifter, og sam­einar lista­safn og vinnu­stofu.

Tveggja bragga móðir
Dregst að litum Hrafn­hildur Shoplifter segir liti eins og ljósameð­ferð við skamm­deg­is­þung­lyndi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Verkið Chromo Sapiens var sýnt á Fen­eyjat­ví­ær­ingnum 2019 í Íslenska skál­anum. Auk sýn­ing­ar­innar verður í Höf­uð­stöð­inni gjafa­vöru­verslun og kaffi­hús þar sem boðið er upp á súpu og brauð, kaffi, létt­vín og fleira. Verk­efn­inu er stýrt af Lilju Bald­urs­dóttur, sam­starfs­konu Hrafn­hildar til margra ára, og saman hafa þær ráð­ist í að fram­kvæma þá hug­mynd að skapa verkum Hrafn­hildar fast land undir fótum og þak yfir höf­uðið til fram­búðar.

„Þetta er áning­ar­staður, þig langar ekk­ert að fara strax héðan,“ segir Hrafn­hildur og bætir við: „Ég sé fyrir mér að fólk sé umvafið mynd­list­inni, fari í göngutúr í nátt­úr­unni hér í kring og komi svo á trúnó yfir kaffi­bolla og njóti sam­veru.“ Þegar Hill­billy kom í heim­sókn var Höf­uð­stöðin enn í vinnslu en þó margt komið upp og lita­dýrðin yfir­gnæf­andi og umlykj­andi, á góðan og djúpnær­andi hátt. Hill­billy gekk í gegnum 360° margskynj­unar lista­verkið Chromo Sapiens, sem er eins og að baða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Mest lesið undanfarið ár