Eldfim umbrot og umræða

Þjóðin var bólu­sett á sama tíma og jörðin skalf og eldur braust úr jörðu á Reykja­nesi. Kyn­ferð­is­brot karla voru fyr­ir­ferða­mikil í umræð­unni sem skipti lands­mönnum í fylk­ingar.

Eldfim umbrot og umræða

 

Janúar

6. janúar

Bóluefni Moderna var veitt íslenskt mark­aðs­leyfi.

6. janúar

Jóhannes Tryggvi Svein­björns­son með­höndl­ari var dæmdur í fimm ára fang­elsi fyrir að nauðga fjórum konum á með­ferð­ar­stofu sinni. Dómnum var áfrýjað sama dag. Um mitt ár 2020 birti Stundin ítar­lega umfjöllun um brot Jóhann­esar Tryggva gegn á annan tug kvenna. Í júní var Jóhannes síðan kærður fyrir fimmtu nauðg­un­ina, fyrir að hafa brotið gegn Ragn­hildi Eik Árna­dóttur, sem sagði einmitt sögu sína í Stund­inni. Lands­réttur þyngdi dóm­inn yfir Jóhann­esi í nóv­em­ber, í sex ára fang­elsi.

12. janúar

Greint var frá því að banda­ríska lyfja­fyr­ir­tækið Pfizer hefði til skoð­unar hvort nægt bólu­efni væri til svo hægt væri að fram­kvæma bólu­setn­ingar­rann­sókn hér á landi. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, stóðu í við­ræðum við fyr­ir­tækið.

13. janúar

Karl­maður var dæmdur í fjórtán ára fang­elsi fyrir að hafa banað eig­in­konu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Uppgjör 2021

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár