Mynd: Heiða Helgadóttir

Alast upp í tveimur menningarheimum á Íslandi

„Ég á auð­veld­ara með að tjá til­finn­ingar mínar á tákn­máli,“ segir Aníta Arn­ars­dóttir, sextán ára mennta­skóla­nemi, sem á heyrn­ar­lausa for­eldra. Stundin heim­sótti hana og fjöl­skyldu hennar á dög­unum og spjall­aði við þau um radd­mál og tákn­mál, menn­ing­ar­heim­ana tvo sem Aníta og bræður hennar hafa alist upp í en þau heyra öll. Táknmál er móð­ur­mál fjöl­skyld­unnar og hund­ur­inn á heim­il­inu skilur nokkur tákn.

Fyrir tæpum sextán árum, þegar Aníta var sex mán­aða, heim­sótti ég hana og for­eldra hennar, þau Heiðdísi Dögg Eiríks­dóttur, hjúkr­un­ar­fræð­ing og for­mann Félags heyrn­ar­lausra, og Arnar Ægisson bif­véla­virkja, sem nú starfar hjá Marel, til að taka við­tal við unga parið vegna heim­ild­ar­myndar sem var í smíðum um bar­áttu heyrn­ar­lausra á Íslandi fyrir bættum mann­rétt­indum. Heim­sóknin var eft­ir­minni­leg. Þegar ég kom var Aníta litla sof­andi úti í vagni en um hálf­tíma síðar byrj­aði ljós á tal­stöð sem var á eld­hús­borð­inu að blikka en ég heyrði ekki barns­grát. Arnar stóð upp þegar hann sá ljósið blikka og náði í Anítu. Á meðan spurði ég Heiðdísi hvort dóttirin væri alltaf svona róleg, hvort hún gréti ekki eins og flest börn þegar þau vakna eftir blund.

Heiðdís sagði að Aníta gréti oft eins og önnur börn en hún hafi verið fljót að læra að það væri nóg að kalla í þau með því …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár