Laxeldi Norðmenn hafa fjár­fest mikið í lax­eldi, meðal ann­ars félagið Arctic Sea Farm hér í Pat­reks­firði fyrir vestan. Félagið er í eigu Arctic Fish sem aftur er í eigu Norð­manna. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Innrásin: Útlendingar eignast íslenska innviði

Ef árin 2005 til 2007 voru tími útrás­ar­innar er 2021 ár inn­rás­ar­innar. Í stað þess að íslenskir fjár­festar taki yfir fyr­ir­tæki erlendis í stórum stíl eru erlendir fjár­festar að kaupa upp eignir hér á landi. Sala á greiðslu­miðlun leiðir af sér að greiðslur Íslend­inga inn­an­lands gætu stöðvast í útlöndum ef til krísu kæmi.

Norðmenn eiga nán­ast allt lax­eldi á Íslandi og norskt fyr­ir­tæki keypti sæl­gæt­is­gerð­ina Nóa Siríus skömmu eftir hund­rað ára afmælið. Erlendir aðilar hafa þegar keypt stóru greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækin og fjar­skipta­inn­viði og fjar­skipta­net Mílu hefur verið selt á 78 millj­arða króna til alþjóð­legs fyr­ir­tækis. Síðustu miss­eri hafa fréttir af kaupum erlendra aðila á íslenskum fyr­ir­tækjum og innviðum hrann­ast inn eins og árið sé 2007 á röng­unni.

Á sama tíma er ekki allt sem sýn­ist, því hag­tölur segja aðra sögu af stöðu Íslend­inga gagn­vart umheim­inum. 

Uppnám við sölu á greiðslumiðlun

Í sumar var komin upp sú staða að bæði stóru greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækin á Íslandi voru komin undir erlent eign­ar­hald. 

Einn þeirra sem hefur áhyggjur af stöðu greiðslu­miðl­unar á Íslandi er Gylfi Magn­ús­son, hag­fræði­pró­fessor og for­seti við­skipta­fræði­deildar Háskóla Íslands, auk þess að vera fyrr­ver­andi efna­hags- og við­skipta­ráð­herra utan þings í rík­is­stjórn­inni sem tók við eftir efna­hags­hrunið.

„Þetta er satt best að segja stór­mál“
Gylfi Magn­ús­son hag­fræð­ingur
Um kaup erlendra aðila á greiðslu­miðlun Íslend­inga

„Þetta er satt best að segja stór­mál, eða getur orðið það í krísu,“ segir hann í sam­tali við Stundina. „Það skipti til dæmis máli 2008 að öll debet­kortin og und­ir­liggj­andi inn­stæðu­kerfi var íslenskt. Íslend­ingar gátu gripið til aðgerða til þess að tryggja þau kerfi. Það er alls ekki ljóst að ef sama staða kæmi upp aftur væri hægt að gera það með sama hætti. Færsl­urnar á Íslandi gætu strandað erlendis.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár