Vandi heilsugæslunnar: „Það er erfitt að duga til“

Heim­il­is­lækn­ir­inn Jörundur Krist­ins­son segir að heilsu­gæslan sé alvar­lega van­rækt og van­búin til að sinna hlut­verki sínu. Ný hverfi séu byggð án þess að ráð sé gert fyrir heilsu­gæslu­stöðvum. Sífellt sé hlaðið á heilsu­gæsl­una verk­efnum án þess að því fylgi aukið fjár­magn, mann­afli eða hús­rými, sem rýrir gæði þjón­ust­unnar, eykur líkur á mis­tökum og lengir biðlista. Efla þurfi grunn­þjón­ust­una, fjölga heilsu­gæslu­stöðvum og starfs­fólki þeirra. Sjálfur hefur hann fundið fyrir auknu álagi og sú hugsun sótt að hvort hann ætti kannski að yfir­gefa fagið sem hann lagði allt í söl­urnar til að sinna: „Ég er stundum alveg að gef­ast upp.“

Heilsu­gæslan fæst við sífellt fleiri og flókn­ari verk­efni, sem má rekja til fram­þró­unar í lækn­ingum, yfir­færslu verk­efna frá sjúkra­húsum til heilsu­gæslu, vax­andi fólks­fjölg­unar, öldr­unar þjóðar, fjölg­unar hæl­is­leit­enda, raf­rænna sam­skipta og stækk­unar bæj­ar­fé­laga, svo dæmi séu tekin. Jörundur Krist­ins­son skrif­aði fyrr á árinu pistil sem birt­ist í Lækna­blað­inu undir yfir­skrift­inni: Efling heilsu­gæslu – gam­all frasi eða raun­veru­legt mark­mið? Þar benti hann á að stór verk­efni séu í vax­andi mæli færð frá Land­spít­ala og víðar að til Heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu án þess að yfir­færsl­unni fylgi fjár­magn, mann­afli eða hús­rými. Heil­brigð­is­ráð­herra, Svandís Svav­ars­dóttir, hefur lagt áherslu á efl­ingu heilsu­gæsl­unnar en Óskar Reyk­dals­son, for­stjóri Heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir rétt hjá Jörundi að þótt fjár­magn til heilsu­gæsl­unnar hafi auk­ist með ein­staka verk­efnum þurfi meira fjár­magn inn í grunn­þjón­ust­una og undir það tekur fram­kvæmda­stjóri lækn­inga, Sigríður Dóra Magn­ús­dóttir. Víða er hús­næði heilsu­gæsl­unnar orðið allt of þröngt, nýjar stöðvar eru ekki reistar í nýjum hverfum, fjöldi fólks …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár