Sænskur læknir telur Róbert hafa farið á bak við sig og selt eignir til skattaskjólsins Jersey án síns leyfis

Sænski þvag­færa­skurð­lækn­ir­inn Essam Mansour fjár­festi fyrir rúm­lega 60 millj­ónir króna í sænsku móð­ur­fé­lagi lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen árið 2009. Hann seg­ist hafa verið úti­lok­aður frá aðkomu að félag­inu frá því að hann fjár­festi í því og starfs­maður Róberts Wessman hafi komið fram fyrir hans hönd á fundum félags­ins án hans umboðs. Fjár­fest­ing­ar­fé­lag Róberts neitar ásök­unum Essams Mansour.

Sænskur læknir telur Róbert hafa farið á bak við sig og selt eignir til skattaskjólsins Jersey án síns leyfis
Deilir við Róbert Wessmann Sænski lækn­ir­inn Essam Mansour hefur átt í deilum við Róbert Wessmann, for­stjóra Alvogen, út af hluta­bréfum sem hann keypti í sænsku móð­ur­fé­lagi Alvogen árið 2010.

Sænski lækn­ir­inn Essam Mansour segir að Róbert Wessman, fjár­festir og for­stjóri sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen, hafi farið á bak við sig eftir að hann tók þátt í stofnun fyr­ir­tæk­is­ins fyrir 12 árum síðan. Essam segir að hann hafi lagt 500 þús­und doll­ara, tæp­lega 62 millj­ónir íslenskra króna á gengi þess tíma, inn í sænska félagið Aztiq Partners AB, sem stofnað var til að halda utan um eign­ar­hluti Róberts og við­skipta­fé­laga hans í Alvogen.

Essam segir að eftir að hann lagði pen­ing­ana fram hafi hann hins vegar verið úti­lok­aður frá félag­inu, ekki fengið að taka þátt í hlut­hafa­fundum og ákvarð­anir hafi verið teknar innan félags­ins án þess að hann hafi verið hafður með í ráðum. Síðan þá hefur Essam reynt að leita réttar síns gagn­vart Róberti en án árang­urs. „Þeir reyndu að bjóða mér 1,2 millj­ónir doll­ara fyrir hlut minn árið 2019. En það er bara lít­ill hluti af verð­mæti hans. Ég …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Róbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Alvotech tapaði 332 milljónum krónum á dag á fyrsta ársfjórðungi
GreiningRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Alvotech tap­aði 332 millj­ónum krónum á dag á fyrsta árs­fjórð­ungi

Fjöl­margir fjár­festar, meðal ann­ars íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, hafa veðjað stórt á að Alvotech muni með tíð og tíma verða mylj­andi pen­inga­vél. Hökt hefur verið á því ferli og á síð­ustu 27 mán­uðum hefur félagið tapað um 180 millj­örðum króna. Stjórn­endur Alvotech eru hins vegar brattir og spá því að tekjur félags­ins muni allt að fimm­fald­ast milli ára.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúlletta Róberts og vitn­is­burðir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mikið álag“

Starfs­menn Alvotech lýsa vinnu­á­lag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leitað til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yfir­vinnu og fleiri málum. Vinnu­að­stæð­urnar hafa verið svona út af því að Alvotech hefur unnið að því að fá mark­aðs­leyfi fyrir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­unum. Fyr­ir­tækið hefur veðjað öllu á þetta lyf en sala á því hefur dreg­ist saman og sam­heita­lyfjum þess hefur alls ekki gengið eins vel í Banda­ríkj­unum og reiknað var með.
Lífeyrissjóður greiddi atkvæði gegn kaupréttum stjórnar Alvotech
FréttirRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Líf­eyr­is­sjóður greiddi atkvæði gegn kaup­réttum stjórnar Alvotech

Lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tækið Alvotech hefur veitt fjórum óháðum stjórn­ar­mönnum kaup­rétti í félag­inu. Stjórn félags­ins fékk heim­ild til að veita öllum stjórn­ar­mönnum slíka kaup­rétti en þeir stjórn­ar­menn sem eru tengdir Alvotech, meðal ann­ars Róbert Wessmann og Árni Harð­ar­son hafa afsalað sér þessum kaup­réttum. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Stapi greiddi atkvæði gegn kaup­rétt­ar­kerf­inu.
Háskólinn hjálpaði Róberti að eignast verksmiðjuna fyrir ekkert
SkýringRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Háskól­inn hjálp­aði Róberti að eign­ast verk­smiðj­una fyrir ekk­ert

Við­skiptin með lóð­ina í Vatns­mýri þar sem lyfja­verk­smiðja Alvotech reis vöktu til­tölu­lega litla athygli fyrir ára­tug síðan. Í við­skipt­unum voru Reykja­vík­ur­borg og Háskóli Íslands hins vegar að afhenda Róberti Wessman afnot af gæðum í opin­berri eigu á silf­ur­fati, sem hann hefur síðan notað til að hagn­ast ævin­týra­lega á í gegnum lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tækið Alvotech.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár