Mynd: Heida Helgadottir

Hagsmunir fárra sterkra ráði of miklu

Á sama tíma og risa­vaxnar sektir hafa verið lagðar á íslensk fyr­ir­tæki vegna sam­keppn­islaga­brota vilja Samtök atvinnu­lífs­ins rann­saka Sam­keppn­is­eft­ir­litið og ráð­herra tak­marka heim­ildir þess. Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri eft­ir­lits­ins, segir hags­muni þeirra sem mest eiga ráða miklu á Íslandi og að hávær gagn­rýni end­ur­spegli það. Sam­keppn­is­reglur séu sér­stak­lega mik­il­vægar fyrir lítið land eins og Ísland, þvert á það sem opin­ber umræða gefi til kynna. Eftirlit hafi verið talað niður af þeim sömu og semja regl­urnar sem eiga að gilda.

„Það að leyfa stórum fyr­ir­tækjum eða fyr­ir­tækjum sem vilja starfa saman að gera hvað sem er, gerir það að verkum að þau fyr­ir­tæki kom­ast í aðstöðu til þess að skapa eig­endum sínum auð, þá á kostnað við­skipta­vina sinna,“ segir Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Stofn­unin sem hann leiðir er nýverið búin að leggja 1.500 millj­óna króna sekt á Eim­skipa­fé­lag Íslands vegna víð­tæks ólög­legs sam­ráðs við keppi­naut fyr­ir­tæk­is­ins, Samskip, að und­an­geng­inni einni umfangs­mestu rann­sókn sem eft­ir­litið hefur ráð­ist í. 

Allt frá því að Sam­keppn­is­eft­ir­litið fram­kvæmdi hús­leit hjá fyr­ir­tækj­unum árið 2013 hafa stjórn­endur Eimskips mót­mælt aðgerðum eft­ir­lits­ins og hags­muna­sam­tök sem skipa­fé­lagið á aðild að hafa end­u­r­ómað þá gagn­rýni. Allt þar til í maí á þessu ári þegar stjórn­endur Eimskips gengu til sátta við eft­ir­litið, við­ur­kenndu brot sín og sam­þykktu að grípa til aðgerða og greiða áður­nefnda sekt. Hún er sú stærsta sem nokk­urt fyr­ir­tæki á Íslandi hefur greitt vegna sam­keppn­islaga­brota. 

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár