426. spurningaþraut: Öğrenim hiç olmazsa ilk ve temel safhalarında parasızdır — já?!

426. spurningaþraut: Öğrenim hiç olmazsa ilk ve temel safhalarında parasızdır — já?!

Hlekki á næstu þrautir má finna allra neðst, þið vitið það núorðið, er það ekki?

***

Fyrri aukaspurning:

Hver er karlinn á myndinni hér að ofan?

***

Aðalspurningar:

1.  Borg ein stór og mikil heitir São Paulo. Í hvaða landi er hún?

2.  Adolf Hitler var þrælmenni mikið og bar ábyrgð á dauða milljóna manna í síðari heimsstyrjöld. Í fyrri heimsstyrjöld var hann hermaður á vesturvígstöðvunum. Þrátt fyrir allt er þó aðeins vitað með vissu til að hann hafi skotið persónulega eina manneskju. Hver var sú?

3.  Við hvern er Ingólfshöfði kenndur?

4.  Land eitt í Evrópu heitir Hrvatska því tungumáli, sem talað er í landinu. En hvað köllum við landið Hrvatska?

5.  Ákveðin tegund af áfengi er eða virðist að minnsta kosti vera kennd við evrópska konungsætt, sem ríkti í mörg hundruð ár með pompi og prakt. Hver er sú?

6.  Hver er varaformaður Sjálfstæðisflokksins?

7.  Hvaða fyrirbæri er oftast átt við með orðinu „mastiff“?

8.  The Jackson 5 var eða kannski er bandarísk hljómsveit sem stofnuð var um 1965 af manni að Joe Jackson og sonum hans. Hvað hét sá langfrægasti þeirra bræðra?

9.  Tvær systur bræðranna tóku einnig þátt í söngskemmtunum þeirra, auk þess sem þær létu að sér kveða í eigin nafni. Nefnið aðra þeirra.

10.  Eftirfarandi texti er úr stjórnarskrá ákveðins ríkis og kveður á um að allir skuli njóta menntunar. En hvaða ríki skyldi það vera? — Her şahsın öğrenim hakkı vardır. Öğrenim hiç olmazsa ilk ve temel safhalarında parasızdır. İlk öğretim mecburidir. Teknik ve mesleki öğretimden herkes istifade edebilmelidir. Yüksek öğretim, liyakatlerine göre herkese tam eşitlikle açık olmalıdır.

***

Seinni aukaspurning:

Hvað heitir persónan á myndinni hér að neðan?

***

Svör við aðalspurningum:

1.  Brasilíu.

2.  Adolf Hitler.

3.  Ingólf Arnarson.

4.  Króatía.

5.  Bourbon í Frakklandi.

6.  Þórdís Kolbrún.

7.  Hundategund.

8.  Michael.

9.  LaToya og/eða Janet.

10.  Tyrkland.

***

Svör við aukaspurningum:

Á efri myndinni er Joseph Ratzinger, öðru nafni Benedikt 16. Hvort heldur nafnið er rétt, en „gamli páfinn“ dugar hins vegar ekki!

Á neðri myndinni er Wilma Flintstone.

***

Og gáið svo að hlekkjunum hér að neðan!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.
„Ég var ofbeldisfullur“
6
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var of­beld­is­full­ur“

Þeg­ar Embla Kristjáns­dótt­ir hóf sam­búð með Niels Thomassen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­in­um sem hún elsk­aði, þar sem stjórn­semi, af­brýði­semi og reiði réðu ríkj­um. Hann gekkst við of­beld­inu, axl­aði ábyrgð og hef­ur unn­ið þrot­laust í sjálf­um sér síð­asta ára­tug. Nú miðl­ar hann reynslu sinni og hvet­ur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ing­ar sín­ar og standa ber­skjald­að­ir.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár