Segir Sjálfstæðisflokkinn ekki eiga að gerast málsvara stórfyrirtækja

Arnar Þór Jónsson, hér­aðs­dóm­ari og fram­bjóð­andi í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir flokk­inn verða að hverfa aftur til fyrri gilda, þegar kjör­orð flokks­ins var „stétt með stétt“.

Segir Sjálfstæðisflokkinn ekki eiga að gerast málsvara stórfyrirtækja
Vill aft­ur­hvarf til fyrri gilda Arnar Þór telur að minnk­andi stuðn­ing við Sjálf­stæð­is­flokk­inn megi rekja til þess að tengsl hans við upp­runa sinn hafi trosnað.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á að hverfa aftur til sinna upp­runa­legu gilda og gera þau sýni­legri í áherslum flokks­ins, í stað þess að „ger­ast málsvari stór­fyr­ir­tækja“, að mati Arnars Þórs Jóns­sonar, hér­aðs­dóm­ara sem nú hefur gerst fram­bjóð­andi í próf­kjöri flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi.

Hann spyr hvort rekja megi fylgis­tap flokks­ins til þess að tengslin við upp­runan, undir kjör­orð­inu „stétt með stétt“, hafi trosnað.

Arnar Þór skrifar grein í Morg­un­blaðið þar sem hann rekur að við stofnun Sjálf­stæð­is­flokks­ins 1929 hafi verið sett fram tvö aðal­stefnu­mál, að Íslandi taki að fullu til sín öll sín mál og gæði lands­ins til afnota fyrir alla lands­menn ann­ars vegar og hins vegar að vinna beri að víð­sýnni og þjóð­legri umbóta­stefnu á grund­velli ein­stak­lings­frelsis og atvinnu­frelsis með hags­munu allra stétta fyrir augum.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á ekki að ger­ast málsvari stór­fyr­ir­tækja“

Í grein­inni kemst Arnar Þór hins vegar að því að lík­lega hafi hafi mis­tek­ist að halda kúrs í þeim efnum. Hann rekur hvernig fylgi flokks­ins hafi framan af verið um og yfir 40 pró­sent en á milli 30 og 40 pró­sent þegar kom fram á átt­unda ára­tug­inn. Hins vegar hafi það enn lækkað eftir fjár­mála­hrunið 2008 og hafi verið um 25 pró­sent síð­ustu þrennar kosn­ingar. „Við leit að skýr­ingum á þess­ari hlut­falls­legu fækkun kjós­enda er sú spurn­ing áleitin hvort tengslin við þennan upp­runa hafi trosnað með þeim afleið­ingum að flokk­ur­inn hafi í fram­kvæmd ekki lagt nægi­lega rækt við þann grund­völl sem honum er þó ætlað að standa á.“

Arnar Þór segir það eitt mik­il­væg­asta verk­efni stjórn­mál­anna að tryggja bæði aukna verð­mæta­sköpun og sem rétt­látasta skipt­ingu verð­mæt­anna. Skapa þurfi grund­völl sáttar milli þeirra sem eigi fjár­magnið og fram­leiðslu­tækin og þeirra sem bjóði fram vinnu­afl sitt. Því sé hin upp­runa­lega stefna flokks­ins enn í góðu gildi, enda séu ein­stak­lings­frelsi og og atvinnu­frelsi enn horn­steinar virks og rétt­láts lýð­ræðis og mark­aðs­kerfis. „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á ekki að ger­ast málsvari stór­fyr­ir­tækja, heldur hverfa aftur til sinna upp­runa­legu gilda og gera þau sýni­legri í áherslum flokks­ins.“

Í síð­ustu skoð­ana­könnun Gallup mæld­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 23,5% fylgi en flokk­ur­inn hlaut 25,2% fylgi í alþing­is­kosn­ingum 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár