Ábyrgðasjóður launa kláraði að greiða fyrir „mistök“

Kröfur 46 fyrr­ver­andi starfs­fólks Manna í vinnu hafa verið greiddar af Ábyrgða­sjóði launa. Sviðs­stjóri rétt­inda­sviðs segir að afgreiðsla launa­krafn­anna hafi verið mann­leg mis­tök er ólög­legur frá­dráttur bland­að­ist inn í launa­kröfur.

Ábyrgðasjóður launa kláraði að greiða fyrir „mistök“
Launa­greiðslur mann­leg mis­tök Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, til­kynnti síðla kvölds þann 10. mars að greiðslur Ábyrgða­sjóðs launa á launa­kröfum fyrr­ver­andi starfs­fólks starfs­manna­leig­unnar Menn í vinnu ehf. hefðu verið mann­leg mis­tök. Hún var í kjöl­farið gagn­rýnd fyrir að tjá sig um mál ein­stakra laun­þega með þessum hætti. Mynd: Vinnumálastofnun

Í árs­fjórð­ungs­skýrslu kjara­sviðs Eflingar kemur fram að launa­kröfur félags­manna stétt­ar­fé­lags­ins sem störf­uðu hjá starfs­manna­leig­unni Menn í vinnu hafi verið greiddar af Ábyrgða­sjóði launa. Sjóð­ur­inn til­heyrir Vinnu­mála­stofnun, en 10. mars til­kynnti Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri stofn­un­ar­innar, að mis­tök hafi ráðið því að fyrstu fjórar launa­kröf­urnar voru greiddar og að greiðsl­urnar yrðu end­ur­skoð­aðar. Engu að síður fengu þær að standa, auk 42 ann­arra sem voru greiddar eftir að til­kynn­ingin var gefin út.

Efling hefur unnið að máli félags­manna sinna gegn Mönnum í vinnu ehf. frá októ­ber 2018, en starfs­manna­leig­unni og Eldum rétt var stefnt í fyrra fyrir van­goldin laun fjög­urra starfs­manna. Þeim var gert að sök að skulda hverjum og einum starfs­manni upp­hæðir á bil­inu 120 til 195 þús­und krónur. Málið féll Eflingu í óhag í hér­aðs­dómi 24. febr­úar, en stétt­ar­fé­lagið fagn­aði engu að síður sigri þar sem Ábyrgða­sjóður launa ákvað 2. og 3. mars að greiða kröfur fyrrum starfs­fólks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár