Sómi Íslands

Björg­un­ar­sveit­ar­fólk úr björg­un­ar­sveit­inni Þorbirni í Grinda­vík hefur sumt hvert staðið sleitu­lítið vakt­ina frá því að eld­gosið hófst í Fagra­dals­fjalli. Þau hafa jafn­framt notið lið­sinnis hund­ruða kollega sinna sem hafa tryggt öryggi fólks og komið hröktum og slös­uðum ferða­löngum til bjargar. Allt í sjálf­boða­vinnu, án þess að skeyta um eigin hag heldur ein­beitt í að hjálpa sam­borg­urum sínum. Það verður seint ofmetið.

Sómi Íslands
Þriðja vikan á vakt­inni Karín og Jakob hafa staðið vakt­ina á gos­s­töðv­unum með félögum sínum í björg­un­ar­sveit­inni Þorbirni í Grinda­vík í þrjár vikur. Þau létu það ekki aftra sér í að ferja blaða­menn í skoð­un­ar­ferð að eld­stöðv­unum. Mynd: Davíð Þór

Tugir þús­unda Íslend­inga hafa haldið gang­andi upp að gos­s­töðv­unum á Reykja­nesi allt frá því að eld­gos hófst í Fagra­dals­fjalli í Geld­inga­dölum 19. mars. Veður hafa verið mis­jöfn, fólk hefur lent í villum og háska. Björg­un­ar­sveit­ar­fólk hefur haft í nægu að snú­ast, og ríf­lega það, við björgun, við aðstoð við göngu­fólk, vett­vangs­stjórnun og eft­ir­lit á svæð­inu. Sögurnar af afrekum þeirra eru orðnar æði margar.

Blaða­maður Stund­ar­innar hringdi í Boga Adolfs­son, for­mann björg­un­ar­sveit­ar­innar Þor­bjarnar í Grinda­vík, að morgni mið­viku­dags­ins 7. apríl og spurði tíð­inda um aðgerðir björg­un­ar­sveit­ar­innar. Nóttin hafði ekki verið tíð­inda­laus. Ný gossprunga hafði opn­ast og nú streymdi hraun á þremur stöðum á Fagra­dals­fjalli og í Geld­inga­dölum. Til hafði staðið að draga veru­lega úr við­bragði björg­un­ar­sveit­anna nú eftir páska en miðað við nýj­ustu vend­ingar þurfti að slá því eitt­hvað á frest.

Spurður hvort þeir væru á leið inn að gos­s­töðv­unum og hvort mögu­legt væri að sníkja far með björg­un­ar­sveit­inni aftók Bogi það ekki með öllu. Það myndi þó ekki ger­ast strax þar eð byrja þyrfti á að fara með jarð­vís­inda­menn inn á svæðið að meta aðstæður. Hann myndi hafa sam­band ef hægt yrði að koma slíkri ferð við.

Kraftar nátt­úr­unnarÁ með­fylgj­andi dróna­mynd­bandi sem Davíð Þór Guð­laugs­son ljós­mynd­ari Stund­ar­innar tók má sjá hversu gríð­ar­legir kraftar eru að verki á Fagra­dals­fjalli.Davíð Þór

„Komið þið bara“

Í Reykja­vík var hálf­gert leið­inda­veður fram eftir degi, skyggni lítið og úrkoma. Blaða­maður var því sum­part alls ekki að búast við neinu þegar sím­inn hringdi um tvöleytið. „Sæll, þetta er Jakob Máni í björg­un­ar­sveit­inni í Grinda­vík. Þú varst eitt­hvað að hugsa um að fá að fara með okkur inn að gos­inu. Komið þið bara, ég fer með ykkur.“ Það var ekki flókn­ara en það.

Við upp­haf ferðarKarín og Jakob taka stöð­una áður en lagt er af stað.

Þegar blaða­maður og ljós­mynd­ari Stund­ar­innar komu til Grinda­víkur mættu þau Jakob Máni Jónsson og Karín Óla Eiríks­dóttir þeim í björg­un­ar­sveit­ar­hús­inu. Bæði eru þau ungir Grind­vík­ingar sem hafa staðið vakt­ina upp á því sem næst hvern ein­asta dag síð­ustu tæpar þrjár vik­urnar, eftir að eld­gos hófst í Geld­inga­dölum 19. mars. Við klifruðum með þeim upp í stóran jeppa björg­un­ar­sveit­ar­innar Þor­bjarnar og án vafn­inga var haldið af stað.

„Þetta er eig­in­lega þannig að ég skrepp rétt aðeins í vinn­una á milli þess sem ég sinni „alvöru“ verk­efn­inu“
Karín Óla Eiríks­dóttir

Björg­un­ar­sveit­ar­fólk sinnir störfum sínum í sjálf­boða­vinnu og þarf að treysta á vel­vild vinnu­veit­enda sinna þegar útköll koma. Sem betur fer er sú vel­vild almennt mikil og skiln­ingur á mik­il­vægi björg­un­ar­sveit­anna almennur. Spurð hvað þau geri dags­dag­lega svarar Karín: „Ég er að vinna í sund­laug­inni hérna og í for­föllum í báðum grunn­skól­unum. Svo er ég að selja Tupperware þess á milli. Ég var á sjó áður en þetta byrj­aði þannig að ég er bara í ýmsu. Það er mik­ill plús að vinna hjá bæj­ar­fé­lag­inu í þessum aðstæðum. Ég fékk alveg heila viku í frí í upp­hafi til að sinna björg­un­ar­sveit­ar­störfum. Það er líka tak­mörkuð opnun í sund­laug­inni sem hentar mér vel, ég er að vinna tvo daga í þess­ari viku og bara hálfan dag­inn. Þannig að þetta er eig­in­lega þannig að ég skrepp rétt aðeins í vinn­una á milli þess sem ég sinni „alvöru“ verk­efn­inu. Maður er voða hepp­inn.“

Jakob er hins vegar nemi, að læra vél­stjórn í Tækni­skól­anum. „Það er kennt bæði í stað­námi og yfir netið. Ég mætti ekk­ert fyrstu vik­una eftir að byrj­aði að gjósa, var bara í fríi frá skól­anum. Ég er bara í tveimur áföngum og skól­inn er þannig að ég þarf að keyra í bæinn til að mæta í einn tíma. Ég vildi ekki fara úr þessu fyrir einn tíma svo ég var bara hér og svo kom páska­frí svo ég þurfti ekki að hugsa um námið á meðan.“

Á Suð­ur­strand­ar­vegiJarð­skjálfta­hrinan sem stóð yfir áður en fór að gjósa fór veru­lega illa með Suð­ur­strand­ar­veg, svo mjög að á köflum er hann hættu­legur og lokað hefur verið fyrir umferð á honum að hluta.

Kæmi ekki á óvart ef ásókn yrði í björgunarsveitarstarf

Þau hafa, þrátt fyrir ungan aldur, bæði verið í björg­un­ar­sveit­inni Þorbirni nokkuð lengi. „Það eru að verða þrjú ár sem ég er búin að vera í björg­un­ar­sveit­inni sjálfri en ég byrj­aði í ung­linga­deild­inni bara fjórtán ára,“ segir Karín sem er 23 ára.  Jakob er aðeins yngri, 19 ára og verður tví­tugur í des­em­ber.  „Ég er að verða búinn að vera í eitt og hálft ár í björg­un­ar­sveit­inni en hafði líka verið í ung­linga­starf­inu áður.“

Bæði sinna þau umsjón með ung­liða­starf­inu í dag, en að vísu er allt stopp í því þessa dag­ana, vegna kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins. Spurð hvort þeim þyki ekki lík­legt að krakkar í Grinda­vík muni flykkj­ast í ung­liða­starfið þegar það kemst í gang aftur, eftir að hafa fylgst með eld­gosi svo að segja í bak­garð­inum hjá sér, jánka þau því. „Það eru held ég alveg líkur á því að það verði meiri áhugi, það verður gaman að sjá. Það væri alveg frá­bært ef við fengjum fleiri inn út á þetta. Núna megum við ekki halda því úti, vegna Covid, og höfum kannski ekki heldur tök á því í þessum aðstæðum, vegna goss­ins,“ segir Karín.

Björg­un­ar­sveitin Þorbjörn er öflug björg­un­ar­sveit, vel tækjum búin og nokkuð fjöl­menn. Ekki hefur veitt af síð­ustu vikur enda í ansi mörg horn að líta eftir að eld­gosið hófst. „Þetta er líka þéttur og góður hópur sem er virkastur í sveit­inni. Við erum hvað þekkt­ust fyrir sjó­björgun en við erum samt það lítil að það geta eig­in­lega allir verið í öllu, það þarf og er nauð­syn­legt. Þú ert ekki bara í bíla­flokk eða bara í báta­flokk,“ segir Karín.

„Það ganga flestir í flest störf, þannig séð. Rétt áður en að byrj­aði að gjósa var maður úti á skipi að sækja bát sem var vél­ar­vana en næstu viku vorum bara öll upp á fjalli þannig að þetta er ansi fjöl­breytt,“ bætir Jakob við.

Aðstoð kollega ómetanleg

Það hefði hins vegar verið Þor­bjarn­ar­fólki næsta ómögu­legt að sinna öllu því sem sinna hefur þurft síðan að gosið hófst, ef ekki hefði komið til aðstoð frá öðrum björg­un­ar­sveitum, víðs vegar af land­inu. Allt í allt hafa á bil­inu 1.300 til 1.400 björg­un­ar­sveit­ar­menn gengið vaktir vegna goss­ins. Það gefur auga­leið að tals­vert utan­um­hald þarf til að koma öllu heim og saman með slíkan fjölda. „Það er Lands­björg sem sér um það, sam­hæf­ing­una. Það var sett upp skrán­ing­ar­form þar sem fólk og sveitir gátu skráð sig inn á vaktir og það hefur verið ótrú­lega mikið af fólki sem vildi koma, sem hefur skráð sig og komið og staðið vaktir með okkur. Þetta er auð­vitað spenn­andi verk­efni og þetta er alveg frá­bært. Þetta er stærsta verk­efni sem við höfum feng­ist við hér á svæð­inu,“ segir Karín.

Jakob segir að mik­il­vægt sé að hafa öfl­uga sveit heima­manna til staðar við skipu­lagn­ingu sem þessa. „Við sem heima­menn höfum auð­vitað mikla yfir­sýn, þekk­ingu á svæð­inu, sem er auð­vitað grunn­ur­inn að stjórn­un­inni. Vett­vangs­stjórnun fer fram í vett­vangs­stjórn­un­ar­bíl, Birninum, sem er stað­settur við björg­un­ar­sveit­ar­húsið hjá okkur.“

„Yfir­sýnin er þar, hópum er skipað til og mann­aðir póstar þaðan. Ég held að það megi segja að þetta gangi mjög vel og hafi gengið,“ segir Karín.

Í þessum orðum töl­uðum er keyrt fram­hjá göngu­leið­inni sem stikuð hefur verið frá Suð­ur­strand­ar­vegi og upp að gos­s­töðv­unum. Á hægri hönd er mikið flæmi utan vegar sem útbúið hefur verið sem bíla­stæði fyrir fólk sem fer gang­andi á stað­inn. Sjá má nokkra tugi bíla á svæð­inu, þó ekki gríð­ar­legan flota. Á vinstri hönd er upp­haf göngu­leið­ar­innar og þar er nokkur fjöldi tækja ýmissa björg­un­ar­sveita, sex­hjól, stórir jeppar og aðstöðu­bíll. Björg­un­ar­sveit­ar­fólk er á svæð­inu til að leið­beina göngu­fólki og hafa eft­ir­lit. Tveir kollegar þeirra Jakobs og Karínar veifa bros­andi þegar við keyrum fram­hjá og við veifum til baka. Sjá má hóp göngu­fólks sem er að hefja göng­una upp að gos­s­töðv­unum. Í sjón­hend­ingu virð­ast allir vel búnir til úti­vistar, enda mik­il­vægt. Þó veður sé gott í svip­inn þá er kalt og allra veðra von á fjöllum.

Ganga hefstEkki voru margir göngu­menn á ferð­inni þennan dag upp að gos­s­töðv­unum en þó ein­hver slæð­ingur. Fólk virt­ist vel búið og til í göng­una.

Spurð hvort að björg­un­ar­sveit­ar­menn hendi reiður á fjölda þess fólks sem leggur af stað að eld­stöðv­unum segir Karín að það hafi verið reynt að gera það. „Ferða­mála­stofa setti upp telj­ara til að hafa yfir­sýn yfir það hversu margir fara inn á svæðið. Við sjáum það kannski best á bíl­unum samt,“ segir Jakob.

„Það er dreift miðum til fólks sem það er beðið um að setja í rúð­urnar í bíl­unum, þar sem það skrifar hvað það á von á að vera lengi og hvað það séu margir í hverjum bíl,“ bætir Karín við.

Fjöldi fólks hætt kominn

Aðfar­arnótt 22. mars gerði vonsku­veður við gos­s­töðv­arnar og ræsa þurfti út um 140 björg­un­ar­sveit­ar­menn til leitar og björg­unar á svæð­inu. Hjálpa varð tugum fólks sem var kalt og hrakið og má segja að tals­verður fjöldi hafi verið hætt komin hrein­lega, sumir komnir með alvar­lega ofkæl­ingu. Björg­un­ar­sveit­ar­menn skráðu fólk sem þeir komu til hjálpar og hófu að bera þær upp­lýs­ingar saman við bíl­númer bíla sem enn voru á svæð­inu. Það var ekki fyrr en liðið var á morgun að tókst að hafa upp á öllum umráða­mönnum bíl­anna og stað­reyna að þeir væru öruggir. Eftir þessa nótt voru græj­aðir miðar frá Savetra­vel til að setja í bíla, segir Jakob. Á þá miða skrifar fólk fullt nafn þeirra sem komu með bílnum og síma­númer. Hefur þessi háttur auð­veldað starf björg­un­ar­sveit­ar­manna veru­lega.

Bregðast þurfti við aðstæð­unum með því að hefja alls­herj­ar­leit. „Útkallið kom hjá okkur um klukkan eitt um nótt­ina en við í Þorbirni voru í raun bara send heim, við vorum búin að standa vakt­ina frá því klukkan átta um morg­un­inn,“ segir Karín. „Það voru kall­aðar út sveitir af höf­uð­borg­ar­svæð­inu og ann­ars staðar af Reykja­nes­inu sem bjuggu yfir óþreyttum mann­skap í verk­efnið,“ bætir Jakob við.

Þetta eru óþægi­legar aðstæður að lenda í, um það eru þau Karín og Jakob sam­mála. Að fjöldi fólks sé í raun týndur á ótryggu svæði í aftaka­veðri og því sem næst ómögu­legt að segja til um hversu margt fólkið sé. „En það hefur ekki verið mikið um slíkt nema þarna fyrst, ekki eftir að tókst að koma skipu­lagi á þetta. Svo­leiðis tekur auð­vitað tíma, eðli­lega,“ segir Karín.

Jakob segir að fyrstu dag­ana hafi fólk farið ansi geyst. „Fólk var kannski aðeins of bratt að fara af stað þarna fyrst. Þá þurfti að labba yfir tvö fjöll en þetta er orðið tölu­vert þægi­legri göngu­leið sem búið er að stika út í dag.“

„Þú skott­ast þetta ekk­ert bara eins og ekk­ert sé“
Karín Óla Eiríks­dóttir

Karín segir að þrátt fyrir þetta séu enn ekki allir að átta sig á út í hvað það sé að fara. „Þú skott­ast þetta ekk­ert bara eins og ekk­ert sé, fyrir óvant fólk þá er þetta alveg meira en að segja það.“

En hvað er fólk, sem er í því sem mætti kalla venju­legu formi, lengi að ganga upp að gos­s­töðv­unum. Jakob útskýrir að nýja leiðin sem stikuð var út á þriðju­dag­inn var sé aðeins lengri en sú sem var áður. „Það voru konur úr björg­un­ar­sveit­inni sem löbbuðu hana í fyrra­dag, svona býsna rösk­lega, og þær voru einn og hálfan tíma á leið­inni. Þannig að það er ekki óvar­legt að ætla að lág­marki tvo tíma í gang.“

Stór tækiAlvöru öku­tæki þarf til að fara um slóð­ina upp í Meradali, að gos­s­töðv­unum.

Tíminn rennur saman í eitt

Nú er beygt út af Suð­ur­strand­ar­vegi inn á veg­slóða sem að Jakob fræðir okkur um að liggi inn í Meradali, þangað sem hraun er nú farið að flæða úr gos­s­töð­inni sem hóf að gjósa á annan í páskum. Slóðinn er grýttur og á eftir að fara versn­andi, þarna er ekki á færi ann­arra en stórra bíla að fara enda ekki ætl­ast til að verið sé að keyra á öðrum bílum þangað upp eftir. Fyrir framan okkur má sjá stóran trukk að sil­ast áfram, bíll sem blaða­maður giskar á að sé af gerð­inni Volvo Laplander, án allrar ábyrgðar. Hann er á vegum ein­hverrar frétta­stof­unnar segir Jakob.

„Ég er orð­inn alveg daga­villtur, ég er ekki lengur að spá í dögum“
Jakob Máni Jónsson

Við komum að léttri girð­ingu sem hefur verið sett upp yfir slóð­ann og Karín hoppar út til að opna fyrir okkur. Það ætti því að vera fólki ljóst að ekki er ætl­ast til þess að það keyri þessa leið án heim­ildar. Engu að síður hefur fullt af fólki virt það að vettugi og reynt að troð­ast slóð­ann án þess að hafa heim­ild til þess, á ýmsum teg­undum af öku­tækjum. „Við höfum haft mann­aða lokun hér, þetta er nú eig­in­lega bara fyrsta skiptið sem ég keyri hingað upp eftir þar sem er ekki bíll frá okkur hér,“ segir Jakob.

Aðgangur bann­aðurAkstur á slóð­inni er háður því að heim­ild sé fengin, enda er um einka­land að ræða og auk þess er mik­il­vægt að björg­un­ar­sveitir hafi greiðan aðgang.

Þetta er sem sagt ekki í fyrsta skipti sem Jakob keyrir upp að gos­s­töðv­unum, fjarri því. Spurður hversu margar ferð­irnar séu hlær hann. „Veistu, ég bara veit það ekki. Tíminn er bara far­inn í eitt. Ég er orð­inn alveg daga­villtur, ég er ekki lengur að spá í dögum. Fólk spyr, manstu þarna á þriðju­dag­inn og ég segi bara ha? En þeir eru allir búnir að vera skemmti­legir, þannig lagað alla vega.“ Og Karín tekur undir það.“

Til stóð að draga veru­lega úr vöktun og við­veru björg­un­ar­sveita á svæð­inu eftir páska. Hins vegar voru þær áætl­anir end­ur­skoð­aðar eftir að byrj­aði að gjósa í nýju sprung­unum. „Það er nú búið að draga eitt­hvað úr samt,“ segir Jakob. Bætt skipu­lag og reynsla hjálpar þar mikið til segir Karín. „Það er komið tölu­vert betra skipu­lag á til dæmis bíla­stæðin og annað, svo það er ekki jafn mikið sem þarf að huga að í þeim efnum. Það hjálpar klár­lega.“

 „Ég held líka að það skipti máli að það er búið að leggja áherslu á það í fjöl­miðlum að þetta er ekki bara ein­hver auð­veld ganga, fólk er að átta sig á því. Það skiptir líka máli að svæð­inu er lokað snemma, klukkan sex í eft­ir­mið­dag­inn er lokað á að fólk leggi af stað og svo er svæðið bara rýmt að kvöld­inu,“ segir Jakob.

Karín segir að það gefi björg­un­ar­sveit­inni færi á að hafa minna við­bragð. „Það er líka það sem gefur okkur færi á að hafa minna við­bragð. Það var nótt um dag­inn þar sem ég stóð vakt frá því klukkan níu um morg­un­inn og til fjögur um nótt­ina því það var nóg að gera við að koma fólki til baka sem var bara örmagnað eða slasað.“

Fjöldi slysa og óhappa á svæðinu

Og það hefur verið tölu­vert mikið að gera fyrir björg­un­ar­sveit­ar­fólk í slíkum verk­efnum, mun meira en komið hefur fram í fjöl­miðlum til þessa segja þau Jakob og Karín. „Sem betur fer hefur ekki verið mikið um alvar­leg slys, fólk er ekki endi­lega að fara heim í sjúkra­bíl en það eru margir sem hafa meitt sig þannig að þeir labba ekki til baka. Ég var eina nótt­ina til klukkan að verða fimm um morg­un­inn í flutn­ingum á fólki sem hafði slasað sig, bara fram og til baka,“ segir Jakob og Karín tekur undir, sömu nótt hafi hún verið í eins aðgerðum.

„Ég var eina nótt­ina til klukkan að verða fimm um morg­un­inn í flutn­ingum á fólki sem hafði slasað sig“
Jakob Máni Jónsson

Við komum að mönn­uðum eft­ir­lit­s­pósti þar sem er bíll frá Flug­björg­un­ar­sveit­inni í Reykja­vík. Í bílnum sitja tveir björg­un­ar­sveit­ar­menn, maður og kona. Jakob rúllar niður rúð­unni og heilsar kump­án­lega. „Það er blessuð blíðan,“ segir hann og fær til baka: „Já, það er frá­bært veður.“ Veðrið er reyndar alveg skap­legt þessa stund­ina. Það er auð­heyrt á sam­tal­inu að þessi eft­ir­lit­s­póstur er kannski ekki upp­á­halds­staður neinna, það langt frá gos­inu að ekk­ert er að sjá. Jakob upp­lýsir að þau Karín séu á leið­inni upp eftir með okkur blaða­menn­ina og fær ósk um góða skemmtun og svarar hinu sama til baka.

Jakob útskýrir að á þessum eft­ir­lit­s­pósti sé haft eft­ir­lit með því hverjir fari um svæðið og upp að gos­s­töðv­unum, hvort við­kom­andi hafi leyfi til þess og þeim sem ekki hafi heim­ild sé þá snúið til baka. Það er ekki fyrir hvaða bíla sem er að fara slóð­ann sem fyrr segir, bæði vegna þess hversu grófur og grýttur hann er en líka vegna þess að hann er blautur. Búið er að herða kröfur til þess hvernig bílar eru útbúnir sem fara um svæðið segir Karín, nú þurfa bílar að vera að lág­marki á 38 tommu dekkjum til að fara slóð­ina.

Mikið um að veraÞyrla Land­helg­is­gæsl­unnar var á sveimi á svæð­inu, til eft­ir­lits.

„Það var búið að heim­ila að fjöl­miðlar gætu komið hingað upp­eftir á venju­legum jeppum, þeir þyrftu ekki að vera breyttir. En þá voru menn að koma bara á Suzuki Jimny og ein­hverju slyddu­jeppum. Þeir kom­ast kannski en það tætir bara slóð­ann upp og gerir hann erf­ið­ara og verri yfir­ferðar að vera að keyra hann á bílum sem kom­ast þetta kannski bara rétt svo,“ segir Jakob.

Í þessu keyrum við fram­hjá ein­hverju tor­kenni­legu tæki sem aug­sjá­an­lega er knúið af sól­ar­sellum. Jakob segir okkur að þetta sé jarð­skjálfta­mælir, sem settur hafi verið þarna upp löngu fyrir gos. Jarð­skjálfta­mælar eru víst ansi víða á svæð­inu, settir upp eftir að jarð­skjálfta­hrinan hófst sem plag­aði Grind­vík­inga og Reyknes­inga veru­lega fyrir gosið, sem frægt er orðið.

Mikilvægt að þekkja svæðið

Við keyrum áfram sem leið liggur, um svæði sem heitir Stóri-Leir­dalur. Slóðin ýmist liggur beint eða hlykkj­ast áfram, allt eftir lands­lag­inu. Ekki margir vissu af þessum slóða fyrir gos segja þau Jakob og Karín okkur, enda slóðin um einka­land og ekki ætl­ast til að fólk sé að þvæl­ast hann án leyfis. Björg­un­ar­sveit­ar­fólk þekkti hann hins vegar, enda mik­il­vægt að þekkja leiðir sem færar eru sem víð­ast á þeirra heima­svæði, ef eitt­hvað kemur upp á. Það er líka ríkur þáttur í þjálfun sveit­anna að fara um svæðin til að kynn­ast þeim, aðstæðum og átta sig á hvernig hægt er að kom­ast um.

„Fólk getur verið í bráða­hættu og það þarf bara að vera fært og ekki van­búnir bílar sem eru að þvæl­ast fyrir“
Jakob Máni Jónsson

Það er mik­il­vægt að höfð sé stjórn á því hverjir fara um svæðið. Jakob segir frá því að hann hafi verið við sjúkra­flutn­inga af gossvæð­inu, með slas­aða konu aftur í,  þó ekki þá leið sem við ökum nú heldur aðra sem hann lýsir sem „tæpum fjór­hjóla­slóða“. „Maður var að drífa sig eins hægt var, það beið sjúkra­bíll niður frá, og alltaf mætti maður bílum, fullt af bílum. Það var alveg glatað. Fólk getur verið í bráða­hættu og það þarf bara að vera fært og ekki van­búnir bílar sem eru að þvæl­ast fyrir.“

Álagið á tækjum og bílum er gríð­ar­lega mikið með svo mik­illi umferð um svæðið, og á ekki betri slóðum um um ræðir. Smá bil­anir hafa verið að koma upp í bíl­unum og hefur þurft að sinna meira við­haldi en vana­legt er.

Þeir sem keyra á svæð­inu eru í raun að brjóta lög, slóð­inn er ekki merktur og því er í praxís um utan­vega­akstur að ræða, sem er óheim­ill. Jakob lýsir fyrir okkur slíkum atvikum. „Það hafa líka verið að fara menn á fjór­hjólum og kross­urum um svæðið utan slóða. Það var einn dag­inn sem við komum að gos­s­töðv­unum þar sem við keyrðum fram á hóp af kross­ara­hjólum sem höfðu verið keyrð eins og dró upp í mjög bratta hlíð rétt við gos­s­töðv­arnar, allt þar til þau drógu ekki meir. Þá lögðu menn bara hjól­unum og gengu rest. Fimm eða sex hjól voru þar rétt utan við slóð­ina í hlíð­inni, búnir að spóla upp um allt. Annan dag­inn þegar við vorum að koma niður af gos­s­töðv­unum hafði ein­hver tekið sig til niðri í Mer­ara­dalnum og leikið sér að því að spóla í hringi í þar niðri, í algjöru til­gangs­leysi.“

Þó það hafi ekki margir heim­ild til að keyra um svæðið er samt tölu­verð umferð. Við mætum bíl þar sem eru inn­an­borðs kollegar okkar frá Stöð 2, einn helsti nátt­úru­ham­fara­f­rétta­maður þjóð­ar­innar í fram­sæt­inu. Töluvert er um umferð blaða­manna á svæð­inu segja þau Jakob og Karín, fyrir ýmsar frétta­stofur. Síðast í fyrra­dag var tökulið á vegum National Geographic á svæð­inu, Jakob telur þó að það hafi aðal­lega verið Íslend­ingar sem voru að vinna að því.

Þegar þau Jakob og Karín eru spurð hvort þau hafi komið á svæðið áður en fór að gjósa svara þau því bæði ját­andi en þá hafi verið veru­legur snjór yfir á svæð­inu. Jakob segir að hann hafi raunar farið oftar en einu sinni, á æfingu með sveit­inni og til að glöggva sig á slóðum og leiðum á svæð­inu.

Rætt við kollegaJakob ræðir hér við kollega sína úr björg­un­ar­sveit­inni Björg á Eyr­ar­bakka, sem leggja Þor­bjarn­ar­fólki lið við vöktun á svæð­inu.

Gosið kemur í ljós

Nú komum við upp brekku og í fyrsta skipti blasir eld­gosið við okkur, úr fjar­lægð. En jafn­vel úr fjar­lægð er yfir­þyrm­andi að sjá krafta nátt­úr­unnar, hvernig eld­ur­inn brýst úr iðrum jarðar. Af brekku­brún­inni sést niður í Mer­ar­dali, næsta dal við Geld­inga­dal þar sem eld­gosið braust út. Þar má sjá hraun­straum sem rennur niður í dal­inn og hraun sem hefur breitt úr sér í dal­botn­inum. Sá hraun­straumur kemur ein­göngu úr sprung­unni sem opn­að­ist á annan í páskum. Fyrir leik­mann er ótrú­legt að sjá hversu mikið flæmi er komið undir hraun á ekki fleiri dögum, á tveimur sól­ar­hringum.

Uppi á brekku­brún­inni er annar eft­ir­lit­s­póstur björg­un­ar­sveita. Þar er mik­ill tækja­bíll fyrir, sex­hjól og jeppi frá björg­un­ar­sveit­inni Björg á Eyr­ar­bakka. Inni í jepp­anum sitja tveir björg­un­ar­sveit­ar­menn, glað­beittir og heilsa kump­án­lega. Annar þeirra segir þetta vera tíunda dag­inn sem hann er við vakt á svæð­inu en hinn er á sinni fyrstu vakt. Allt í allt hafa á milli tíu og fimmtán björg­un­ar­sveit­ar­menn frá Björg tekið vaktir á svæð­inu frá því að gos hófst. Þeirra hlut­verk í dag er að vera til taks ef bregð­ast þarf við, komi eitt­hvað upp á á svæð­inu. Klukkan er að ganga fimm í eft­ir­mið­dag­inn og þeir hafa setið í bílnum frá því um hádegi, án þess að til tíð­inda hafi dregið, sem betur fer. „Þannig viljum við hafa það,“ segja þeir og Jakob kinkar kolli sam­mála.

Sjón­ar­spilÚtsýnið yfir Mer­ar­dali og að gos­s­töðv­unum á Fagra­dals­fjalli er ótrú­legt.

Til hliðar við bíl björg­un­ar­sveit­ar­innar er Volvoinn sem hefur dólað á undan okkur kyrr­stæður. Út úr honum koma frétta­maður og mynda­töku­maður Stöðvar 2, að virða fyrir sér útsýnið. Þetta er ekki fyrsta ferðin þeirra á svæðið en upp­lifunin er eftir sem áður þannig að menn setur hljóða, lýsa þeir.

Við stígum upp í bíl­ana að nýju og höldum niður í Mer­ar­dali. Það er tals­vert kald­ara þarna upp frá en var niðri í byggð, örlítil úrkoma á köflum. Upp undir gos­s­töðv­unum má sjá fólk bera við him­inn, á hreyf­ingu. Við nálg­umst hraun­breið­una niðri í dalnum, sem nú er runnin yfir slóð­ann sem björg­un­ar­sveit­ar­fólk hefur keyrt fram til þessa. Niðri í dal­botn­inum eru þrír eða fjórir bílar. Þegar við komum niður eykst slyddan og við rennum upp í háls, setjum upp vett­linga og húfur og förum út úr bílnum. Ljós­mynd­arar Frétta­blaðs­ins eru nýkomnir niður og að tygja sig heim á leið. Þeir lýsa því að fátt sé af fólki við gos­s­töðv­arnar. Létt er yfir fólki, það er upp­lifun og gaman að koma á stað­inn.

Yfirþyrmandi kraftar

Jakob og Karín bjóð­ast til að fylgja okkur á fæti að gos­s­töðv­unum og við þiggjum það boð með þökkum. Þau eru með gasmæla, vel búin, með hjálma og í björg­un­ar­sveit­ar­göllum. Við erum í þeim fötum sem líkj­ast mest úti­vi­star­fötum og við gátum dregið upp úr skúff­unum heima hjá okkur. Leiðin fram undan er stutt, en brekkan er brött, raunar mjög brött. Við höldum af stað og stikum upp á við. Við og við blásum við mæð­inni en kemst þó hægt fari. Og þegar upp er komið er upp­lifunin stór­kost­leg.

Við okkur blasir sull­andi gígur, dyngja sem er að hlað­ast upp fyrir aug­unum á okkur ef svo má segja. Hraun flæðir í ýmsar áttir, niður í Meradali úr gígnum sem við sjáum næst okkur. Fólk er á vappi um svæðið, en ekki mik­ill fjöldi. Fæstir segja margt, kraft­arnir í nátt­úru­öfl­unum eru yfir­þyrm­andi og eng­inn vill missa af neinu.

Við göngum um svæðið, að gossprung­unni sem hafði byrjað að gjósa úr nótt­ina áður. Þar hefur hraun líka hlað­ist upp og það er undr­un­ar­vert að sjá hversu hratt það hefur byggst upp. Lengst frá okkur er fyrsta eld­stöðin, þar sem gos hófst að kvöldi 19. mars. Hraun­breiðan sem runnið hefur þaðan er stórt og mikið og fyllir að manni finnst hálfan Geld­inga­dal­inn. Við sjáum ekki sjálfan gíg­inn þaðan sem við stöndum en hraun­slettur koma af og til upp fyrir brún­ina.

Jakob bendir okkur á hvar tjald björg­un­ar­sveit­anna stóð áður en hóf að gjósa úr eld­stöð númer tvö. Fjar­lægðin er ekki mikil, talin í nokkur hund­ruð metrum. Enn nær er gossprungan sem hóf að gjósa úr aðfara­nótt 7. apríl. Þau Karín lýsa því hvernig björg­un­ar­sveit­ar­fólk skipti sér í hópi, til að rýma svæðið, til að taka saman tjaldið og tól sín og tæki. Á meðan fór hann ásamt öðrum til að koma olíu á ljósa­vél sem knýr gsm-sendi sem björg­un­ar­sveit­irnar komu upp á svæð­inu. „Það var metið sem svo að það væri algjört for­gangs­at­riði að tryggja að sam­band héld­ist við þessar aðstæður.“ Karín tekur undir og segir það gríð­ar­lega mik­il­vægt að hægt sé að ná síma­sam­bandi á svæð­inu.

Fátt er um björg­un­ar­sveit­ar­fólk við gos­s­töðv­arnar að þessu sinni og fólk sem er þarna statt gefur sig á tal við þau Jakob og Karín, spyr spurn­inga, leitar ráða, um hvort sé óhætt að fara svo og svo nálægt hraun­inu eða hvort hægt sé að kom­ast annað til sjá það frá öðru sjón­ar­horni. Þau leysa greið­lega úr beiðnum fólks­ins og svara spurn­ingum þess. Frétta­maður Sjón­varps spyr hvort óhætt sé að standa á ákveðnum stað með eld­gosið í bak­sýn í beinni útsend­ingu í kvöld­fréttum. Þau Karín og Jakob sjá ekki mein­bugi á því, vind­átt er með þeim hætti að ekki ætti að þurfa að hafa áhyggjur af gasmengun. En þau brýna fyrir öllum að fara með gát og hafa varan á.

Einu við­bragðs­að­il­arnir aðrir sem sjá­an­legir eru við gos­s­töðv­arnar eru tveir með­limir úr sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra sem rölta um og hafa gát á öllu. Þeir segja að staðan sé ágæt, fátt fólk hafi verið á svæð­inu í dag en það hafi verið heldur kalt fyrr um dag­inn. Veðrið er ekki meira en skap­legt þessa stund­ina og ljós­mynd­arar bölva í hljóði vegna skorts á skyggni. Veðrið eykur þó að sumu leyti á dulúð­ina, í bland við eld og eimyrju.

Við förum að huga okkur til hreyf­ings heim á leið, viljum ekki troða um of á gest­risni þeirra Jakobs og Karínar. Slyddan er líka að aukast, það stefnir í leið­inda bleytu hríð. Við röltum niður brekk­una aftur að bílnum, þurfum að fara að öllu með gát til að renna ekki í krap­anum. Þegar niður er komið höldum við af stað heim að nýju. Leiðin til baka virkar styttri, færra er sagt, við blaða­menn enn að melta það sem við höfum orðið vitni að.

Þegar komið er niður í byggð þökkum við kær­lega fyrir okkur. Þau Jakob og Karín gefa lítið fyrir það, þetta hafi verið sjálf­sagt. Þau halda svo inn í björg­un­ar­mið­stöð, til að hafa fata­skipti, til að fara í kvöld­mat. Til að safna kröftum því þau eru til­búin til að bregð­ast við. Á morgun verða standa þau líka vakt­ina. Ásamt félögum sínum í björg­un­ar­sveit­inni Þorbirni og ásamt félögum sínum í öðrum björg­un­ar­sveitum, bæði á gos­s­töðv­unum á Reykja­nesi og um land allt. Sómi Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár