Ninja Sif Jón­ínu­dóttir Mynd: Heida Helgadottir

Kynntist föður sínum eftir að hann dó

Ninja Sif Jón­ínu­dóttir hafði aldrei séð föður sinn, en allt í einu stóð hún frammi fyrir jarð­neskum leifum hans í kirkj­unni.

Ninja Sif Jón­ínu­dóttir er arki­tekt og ein­stæð móðir tví­bura­drengja. Sjálf er hún alin upp af ein­stæðri móður í miðbæ Reykja­víkur. Í upp­vext­inum hafði hún aldrei barið föður sinn augum, en þegar hann dó síð­asta vor var hún dregin inn í atburða­rás sem hún átti síst von á. Í gegnum þetta ferli lærði hún að fyr­ir­gefa föður sínum og eign­að­ist fjöl­skyldu sem hún hafði ekki áður þekkt. 

Spurningar án svara 

Sem barn ein­stæðrar móður fann hún snemma fyrir félags­legri sér­stöðu. Hún átti erfitt með að svara spurn­ingum um upp­runa sinn því hún þekkti hvorki föður sinn né fjöl­skyldu hans. „Í sex ára bekk vorum við bara tvö sem áttum ekki mömmu og pabba sem voru saman. Það voru allir mjög áhuga­samir um að vita hver mín saga væri, því ég þekkti ekki pabba minn og vissi ekki hvað hann gerði. Þetta voru svona spurn­ingar sem voru engin svör við. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár