Þunglyndið rænir draumunum en maníu fylgir stjórnleysi

Eydís Víglunds­dóttir greind­ist með félags­fælni, átröskun og ADHD, sem kom síðar í ljós að var í raun geð­hvarfa­sýki. Hún rokkar á milli maníu og þung­lyndis, var í þung­lyndi þegar við­talið var tekið og sagð­ist þá alltaf vera að týna sér meira og meira. Ef hún hefði verið í maníu þá hefði henni hún fund­ist eiga heim­inn.

Þunglyndið rænir draumunum en maníu fylgir stjórnleysi
Eydís Víglunds­dóttir „Ég held ég hafi verið þung­lynd sem krakki. Ef ég hugsa til baka þá átti ég alveg mínar stundir þar sem ég vildi bara vera ein og mér leið illa en ég vissi ekki af hverju. En svo átti ég mínar hæðir líka.“ Mynd: Heiða Helgadóttir

Eydís Víglunds­dóttir bjó fyrstu árin í Reykja­vík en svo flutti fjöl­skyldan til Njarð­víkur þegar hún var níu ára þar sem hún var oft uppi í heiði að tína ber. „Og á vet­urna var maður á skautum úti á götu.“

Svo var aftur flutt til Reykja­víkur þremur árum síðar. Í mið­bæ­inn.

„Það var bara mjög gott að búa í mið­bænum. Ég var mikið með vin­konum mínum og ég held að við höfum verið miklir englar. Við vorum ekk­ert mikið að fara í partí, enda veit ég ekki hvort ég hefði þorað það ef mér hefði verið boðið.“

Hún seg­ist alltaf hafa verið feimin. Félags­fælin.

„Ég var alltaf með var­ann á um að ég væri að gera rétt og að það yrði hlegið að mér. Og það varð alltaf allt að vera eftir bók­inni. Ég hef alltaf átt mjög góða vini en ég hef aldrei getað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár