Mynd: Heiða Helgadóttir

„Loksins lesbía!“

Eva Jóhanns­dóttir var ekki orðin sjálf­ráða þegar maður beitti hana grimmi­legu ofbeldi. Annar maður kom þar að en í stað þess að koma henni til bjargar braut hann líka á henni. Hún vildi vera viss um að vera ekki mótuð af þess­ari reynslu þegar hún kom út úr skápnum. „Loksins lesbía,“ hróp­aði afi hennar en homm­arnir í fjöl­skyld­unni eru svo margir að á ætt­ar­mótum er skellt í hóp­mynd af sam­kyn­hneigðum. Afinn bauðst líka til að splæsa í danskt sæði fyrir hana en hún valdi aðra leið, að eign­ast barn með hommum.

Í ferða­lagi norður á land tók lífið óvænta stefnu. Eva Jóhanns­dóttir var þar á ferð með vini sínum, hún lesbía og hann hommi. Umræð­urnar leidd­ust út í barn­eignir, en Eva hafði í tvígang reynt að eign­ast barn með öðrum vini sínum, án árang­urs. Úr varð að vinur hennar spurði hvort hún væri til­búin til að reyna aftur, nú með honum og eig­in­manni hans. 

Eva var ekki viss, hafði nýgreinst með tvo sjúk­dóma og var að stíga upp úr margra ára veik­indum. Hana hafði samt lengi langað í barn. „Ég var búin að ákveða að þegar ég væri loks búin að ljúka kenn­ara­námi myndi ég ná mér í danskt sæði.“ Hún hlær og segir að afi sinn, Sturla, hafi verið stór­kost­legur karakter. Þar sem hann hafi vitað að hana lang­aði í barn hafði hann spurt móður hennar hvað stæði í vegi fyrir því, hvort það væru pen­ingar. Ef svo væri, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár