Vilja að Ásmundur Einar skipi rannsóknarnefnd um starfsemi Laugalands

Ellefu nafn­greindar konur sem lýsa ofbeldi sem þær urðu fyrir á Lauga­landi hafa skrifað Ásmundi Einari Daðasyni félags­mála­ráð­herra bréf þar sem þær fara fram á rann­sókn á starf­sem­inni á Lauga­landi. „Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir ofbeldið sem við­gekkst á Lauga­landi“.

Vilja að Ásmundur Einar skipi rannsóknarnefnd um starfsemi Laugalands
Vilja að rann­sókn­ar­nefnd verði skipuð „Við upp­lifum að á okkur hafi ekki verið hlustað og stígum því fram í dag í þeirri von að nú verði starf­semin rann­sökuð, mis­tök verði við­ur­kennd og við beðnar afsök­unar,“ segir í bréfi kvenn­ana til félags­mála­ráð­herra.

Ellefu konur sem dvöldu á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007 hafa sent Ásmundi Einari Daðasyni félags­mála­ráð­herra bréf þar sem þær óska eftir því að hann skipi rann­sókn­ar­nefnd til að kanna starf­semi Lauga­lands í tíð Ingjalds Arn­þórs­sonar sem for­stöðu­manns. Ásmundur hefur svarað kon­unum og boðið þeim að funda með hópnum bráð­lega.

Í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar stigu sex konur fram og lýstu upp­lifun sinni af harð­ræði og ofbeldi, and­legu og lík­am­legu, sem þær segja Ingjald hafa beitt þær meðan þær voru vistaðar á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, áður Varp­holti. Gögn sýna að Barna­vernd­ar­stofu fékk til­kynn­ingu um illa með­ferð á stúlku sem þar dvaldi fyrst árið 2000.

„Könn­uð­ust þau við að hafa heyrt flest af því sem þar kom fram“
Úr minn­is­blaði umboðs­manns barna

Árið 2001 kvört­uðu fleiri stúlkur til umboðs­manns barna, sem brást við með því að boða þrjár stúlkn­anna á sinn fund þar sem þær lýstu dvöl sinni og með­ferð­inni á Lauga­landi. Umboðs­maður fund­aði í kjöl­farið með for­stöðu­manni Stuðla og fleiri starfs­mönnum þar sem farið var yfir ábend­ing­arnar. segir í minn­is­blaði umboðs­manns barna um fund­inn. Í sama minn­is­blaði segir að ábend­ingar um Lauga­land hafi borist úr fleiri áttum, frá stúlkum sem þar hafi dvalið og einnig frá for­eldrum nokk­urra stúlkna. Nið­ur­staða fund­ar­ins var að haft yrði sam­band við Barna­vernd­ar­stofu og eitt­hvað yrði gert varð­andi ástandið á Lauga­landi.

Í maí árið 2002 sendi umboðs­maður barna Barna­vernd­ar­stofu erindi þar sem farið var fram á að kannað yrði hvað hæft væri í ábend­ingum um að rekstr­ar­að­ilar Lauga­lands hefðu brotið gegn barna­vernd­ar­lögum og gegn Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Barna­vernd­ar­stofa svar­aði erind­inu tveimur mán­uðum síðar og vís­aði þar til þess að tvær kann­anir hefðu verið gerðar meðal þeirra stúlkna sem dvöldu á Lauga­landi, um líðan þeirra þar. Báðar þær kann­anir sem vísað var til voru gerðar áður en erindi umboðs­manns barna var sent. Ekki hafa komið fram gögn um að annað hafi verið aðhafst og hélt Ingj­aldur rekstri Lauga­lands áfram ótruflað til árs­ins 2007.

Ráðherra hyggst funda með konunum

Konurnar ell­efu sem skrifa undir bréfið til Ásmundar Einars koma fram fyrir hönd fyrr­ver­andi skjól­stæð­inga Lauga­lands en til­tekið er að kon­urnar séu fleiri, sem kjósa nafn­leynd að sinni. Þær skýra út í bréf­inu að þær hafi lýst and­legu og lík­am­legu ofbeldi sem þær upp­lifðu á Lauga­landi, til­raunum sínum til að upp­lýsa Barna­vernd­ar­stofu þar um, en án árang­urs, ekki hafi verið brugð­ist við kvört­unum þeirra.

„Það er ein­dregin ósk okkar að rann­sókn­ar­nefnd verði stofnuð og starf­semi Lauga­lands fram til 2007 verði ítar­lega könnuð“
Úr bréfi kvenn­anna til félags­mála­ráð­herra

„Það er ein­dregin ósk okkar að rann­sókn­ar­nefnd verði stofnuð og starf­semi Lauga­lands fram til 2007 verði ítar­lega könnuð, svo fram komi hvað þar átti sér stað, hvernig það við­gekkst og hvað fór úrskeiðis þegar kvart­anir bár­ust og kallað á eft­ir­lit.

Miðað við þau gögn sem við höfum fengið, t.d. frá umboðs­manni barna, ber ekki á öðru en að málið hafi ekki verið athugað á sínum tíma. Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir ofbeldið sem við­gekkst á Lauga­landi en þess í stað var ekki brugð­ist við og fleiri skjól­stæð­ingar sendir þangað sem síðar upp­lifðu það sama. Við upp­lifum að á okkur hafi ekki verið hlustað og stígum því fram í dag í þeirri von að nú verði starf­semin rann­sökuð, mis­tök verði við­ur­kennd og við beðnar afsök­unar,“ segir í bréfi kvenn­ana. Þá óska þær eftir því að fá fund með ráð­herra.

Í morgun fengu kon­urnar svar frá aðstoð­ar­manni Ásmundar Einars þess efnis að hann vildi gjarnan hitta þær bráð­lega og hlusta á þeirra sjón­ar­mið. Áður hafði staðið til að Ásmundur fund­aði með einni konu sem var vistuð á Lauga­landi en í ljósi beiðni kvenn­ana ell­efu þá leggur ráð­herra til að funda með öllum þeim konum sem það vilja á hóp­fundi.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár