Bragi segist ekki muna eftir fundi um Laugaland

Bragi Guð­brands­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, segir að sig reki ekki minni til þess að hafa heyrt lýs­ingar af ofbeldi í Varp­holti og Lauga­landi. Hann vill ekki tjá sig um tutt­ugu ára gömul mál.

Bragi segist ekki muna eftir fundi um Laugaland
Segist ekki geta tjáð sig Bragi segir að hann geti ekki tjáð sig um tutt­ugu ára gömul mál, hann hafi látið af störfum sem for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu.

Bragi Guð­brands­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, segir að hann reki ekki minni til þess að hafa átt fund með stúlku sem lýst hafi fyrir honum harð­ræði og ofbeldi sem átti sér stað á með­ferð­ar­heim­il­unum í Varp­holti og á Lauga­landi. Hann kann­ast lítt eða ekki við að upp hafi komið mál er sneru að meintu ofríki, harð­ræði eða ofbeldi á þessum með­ferð­ar­heim­ilum og segir að hann geti ekki brugð­ist við tutt­ugu ára gömlum atvika­lýs­ingum, hann hafi látið þar af störfum.

Kolbrún Þor­steins­dóttir, ein stúlkn­anna, sem lýsir dvöl sinni í Varp­holti og á Lauga­landi undir stjórn Ingjalds Arn­þórs­sonar, hér í blað­inu, lýsir því að árið 2001 hafi hún gengið á fund Braga og sagt honum frá ofbeld­inu sem hún upp­lifði þar. Bragi hafi hlustað, ekk­ert skrifað niður og svo kvatt hana. „Ekkert gerð­ist í kjöl­farið,“ segir Kolbrún. Þá er skjal­fest að þrjár stúlkur sem dvalið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár