Mynd: AFP

2020: Annus horribilis

Árið sem er að líða hefur verið meira en lítið við­burða­ríkt á heims­vísu og oft­ast ekki á góðan hátt. Far­sóttir, póli­tísk átök og hörm­ungar settu svip sinn á 2020 um allan heim og eft­ir­köstin eiga enn eftir að koma í ljós.

Janúar

Strax í upp­hafi árs fóru að ber­ast tíðar fréttir af nýju og ban­vænu afbrigði kór­óna­veiru sem greinst hafði í Wuhan í Kína og var farin að ber­ast á milli fólks. Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) lýsti því yfir í jan­úar að Covid-19, eins og sjúk­dóm­ur­inn átti eftir að vera kall­aður, væri alþjóð­legt heilsu­far­s­vanda­mál sem kall­aði á sam­hent við­brögð. Þess í stað fóru ríki heims­ins fljótt í skot­grafir, skipt­ust á ásök­unum innan WHO og von­uð­ust ein­fald­lega til að far­ald­ur­inn yrði að mestu stað­bundið vanda­mál.

Upphaf far­ald­ursHlífð­ar­fata­klæddir menn standa vörð um mann sem lést af völdum Covid-19 30. jan­úar í kín­versku borg­inni Wuhan.

Grunur lék á að heil­brigð­is­yf­ir­völd í Kína hefðu gert lítið úr vand­anum með óná­kvæmri skrán­ingu til­fella og jafn­vel föls­unum. Þær ásak­anir fengu byr undir báða vængi á dög­unum með leka „Wuhan skjal­anna“ svoköll­uðu sem fjallað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár