Kristján Þór sjávarútvegsráðherra „lækaði“ gagnrýni á umfjöllun RÚV um Samherja

Kristján Þór Júlíusson sjávar­útvegs­ráðherra „lækaði“ Facebook-færsluna „Fokkings bjálkinn“ þar sem gagn­rýnendum Samherja var bent á að líta í eigin barm. Ríkis­útvarpið er gagnrýnt harðlega í færslunni fyrir frétta­flutning um Seðla­banka - og Namibíu­málið. Kristján Þór er aldavinur Þorsteins Más Baldvins­sonar og hefur lýst mögulegu vanhæfi sínu vegna mála sem tengjast Samherja „sérstak­lega“.

„Læk“ Kristjáns Þórs
„Læk“ Krist­jáns Þórs Kristján Þór Júl­í­us­son setti „læk“ á færslu þar sem Rík­is­út­varpið var gagn­rýnt fyrir frétta­flutn­ing um Samherja.

Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins og sjávar­útvegs­ráðherra, setti „læk“ á Facebook-færslu um helgina þar sem Ríkis­útvarpið var gagnrýnt fyrir frétta­flutning af málum Samherja, meðal annars Namibíu­málinu.

Kveikur í Ríkis­útvarpinu greindi frá Namibíu­málinu í fyrra, ásamt Stundinni, Al Jazeera og Wikileaks, en inntak málsins eru mútu­greiðslur Samherja til embættis­manna í Namibíu í skiptum fyrir hesta­makrílskvóta. Málið er nú til rann­sóknar í Namibíu, Íslandi og í Noregi. 

Merkingin á bak við „læk“ á Facebook hefur verið skeggrædd mikið frá því Facebook-samfélags­miðillinn var opnaður. Facebook sjálft útskýrir „læk“ þannig að með því sé sá sem „lækar“ að segja að hann „hafi ánægju af“ færslunni eða sé sammála henni án þess þó að viðkomandi segi það í kommenti. 

Samherji hefur sjálfur túlkað og lagt merkingu í „læk“ einstakra starfs­manna RÚV í kærum til siða­nefndar RÚV vegna umfjöllunar stofnunarinnar um Samherja. Í kæru Samherja til siða­nefndar RÚV segir að í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár