Það er erfitt fyrir fullfrískan einstakling að drukkna í Tjörninni, þar sem hún er einungis 50cm djúp. Tjörnin er griðland fugla en þar stoppa við hátt í 50 tegundir til lengri eða skemmri tíma. Þar af eru sjö andategundir sem verpa í og við Tjörnina, auk þess verpa þar bæði álftir og kríur. Á vissum tíma, líkt og nú, eru sílamávarnir mjög áberandi, ásamt örfáum svartbökum. Fyrirferðamestar eru þó brautmetis-sólgnu grágæsirnar.
* Fyrirsögnin er úr ljóði Tómasar Guðmundssonar, Vatnsmýrin sem kom út árið 1933
Athugasemdir