Það er fátt notalegra nú á aðventunni en leggja leið sína niður í miðbæ og kíkja í búðarglugga, sjá eitthvað fallegt til að gefa vinum og fjölskyldu. En verslunarmynstrið hjá okkur er að breytast hratt. Samkvæmt nýrri könnun Zenter rannsókna ætla sex af hverjum tíu Íslendingum að versla jólagjafirnar á netinu þetta árið. Annað sem hefur breyst mikið frá í fyrra, er að hlutfall milli erlendra og innlendra vefverslana er nú hnífjafnt. Sendingar hjá Póstinum vegna innlendrar netverslunar jukust um 120% nú í nóvember, á meðan pakkar frá erlendum vefverslunum drógust örlítið saman milli ára.
Athugasemdir