Árið 1906 kom síminn til Íslands, nánar tiltekið til Seyðisfjarðar með sæstreng frá Skotlandi, í gegnum Færeyjar. Bændur fjölmenntu til Reykjavíkur það ár, til að mótmæla lagningu símalínu þvert í gegnum sveitir landsins - þeir höfðu nefnilega tröllatrú á því að síminn yrði fljótlega þráðlaus. Það kom líka á daginn, reyndar áttatíu árum seinna. Í dag eru 115.992 með virkar fastlínuáskriftir (stór hluti fyrirtæki) og hvorki fleiri né færri en 475.842 farsímanúmer eru í notkun hjá þjóð sem telur bara 360 þúsund sálir.
Athugasemdir