Fjandans farsíminn

Á síð­ustu tíu árum hefur sala á mynda­vélum hrunið um 87%, úr 121,5 millj­ónum ein­tökum seldum árið 2010 í 15,2 millj­ónir á síð­asta ári. Allt fjand­ans far­sím­anum að kenna.

Fjandans farsíminn
Par­ís­ar­borg, Frakk­landi Birtan í mynd­inni sem sím­inn gefur er í engu sam­ræmi við það sem var, í skugga hins 324 metra háa Eiffel-turns. Mynd: Páll Stefánsson

Þessi bylt­ing hófst í Helsinki fyrir 15 árum, þegar Nokia kynnti N90 sím­ann sinn með 2MP mynda­vél, flassi og linsu frá Carl Zeiss. Það er sama stærð af flögu og iPhone hafði þegar hann var kynntur tveimur árum seinna, en þá var Nokia komið með 5MP mynda­vél í N95 sím­ann. Stýri­kerfið varð Nokia að falli og nú eru þeir bara peð sam­an­borið við Apple, Samsung, Huawei og Sony – en allir þessir fram­leið­endur eru með frá­bærar mynda­vélar í sínum nýj­ustu tækjum. Mynd­irnar úr þeim eru mjög góðar og duga flestum til að skrá­setja það sem fyrir augu ber, eða sjálfan sig, og koma mynd­unum strax áfram á sam­fé­lags­miðla eða með skila­boðum til vina og vanda­manna.

Kænu­garður, ÚkraníuAllt í einu birt­ist hún uppá stytt­unni, mynda­véla­laus í Khreshchaty garð­inum í mið­borg­inni, og tók eins og eina sjálfu á sím­ann sinn.
…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár