Þið kannist við jólaköttinn,
sá köttur var gríðarstór.
Fólk vissi ekki hvaðan hann kom
eða hvert hann fór.
Hann glennti upp glyrnurnar sínar,
glóandi báðar tvær.
Það var ekki heiglum hent
að horfa í þær.
Jólaköttinn orti Jóhannes úr Kötlum árið 1932 og nú er hann kominn í allri sinni dýrð, 88 árum síðar, niður á Lækjartorg, skreyttur 6.499 perum til að lýsa upp svartasta skammdegið.
Athugasemdir