Samkvæmt tímatali Múhameðstrúarmanna er árið í ár 1442, hjá Gyðingum er árið 5780. Austur í Norður-Kóreu er árið 108 - sem er auðvitað miðað við fæðingarár hins stóra leiðtoga Kim Il-sung, stofnanda landsins. Núverandi einvaldur og sonarsonur Kim Jong-un, tók við embættinu af föður sínum árið 99, en hann er fæddur árið 71. Fremst á myndinni er Menningarsetur múslima á Íslandi, en þau hafa haft aðsetur í Ýmishúsinu síðan árið 100. Í bakgrunni rís Hallgrímskirkja, en hornsteinn hennar var lagður árið 33 og framkvæmdum var lokið 41 ári síðar, eða árið 74.
Athugasemdir