Í heiminum deyja tveir einstaklingar á mínútu í umferðarslysum, það gera 3.700 á sólarhring eða 1,3 milljónir á ári. Fyrsta banaslysið í umferðinni hér heima varð 25. ágúst 1915. Guðmundur Ólafsson, 9 ára drengur, hljóp úr Veltusundi í veg fyrir reiðhjól í Austurstæti og lést af höfuðhöggi sem hann hlaut. Fyrsta fórnarlamb bílvæðingar var Ólöf Margrét Helgadóttir, en hún gekk í veg fyrir bifreið á gatnamótum Bankastrætis og Ingólfsstrætis þann 29. júní 1919. Síðan þá hafa 1.583 látist í umferðinni á Íslandi. Á heimsvísu stöndum við okkur vel, samkvæmt meðaltalstölum síðustu þriggja ára frá WHO eru 167 þjóðríki sem hafa hærra hlutfall dauðsfalla en við. En hér látast að meðaltali 3,3 einstaklingar árlega, á hverja 100 þúsund íbúa. Svíar standa sig best, með 2,3 á hverja 100 þúsund. Í Zimbabwe er hlutfallið hæst, með 61,9 á hverja 100 þúsund íbúa.
Athugasemdir