Leita svara vegna dularfulls andláts í Mosfellsbæ

Mariuszi Robak var lýst sem lífs­glöðum og and­lega stöð­ugum ungum manni sem elskaði fjöl­skyld­una sína, vini og Ísland. Það kom því öllum á óvart þegar hann tók svipti sig lífi síð­ast­liðið sumar. Bróðir hans og besti vinur hafa báðir efa­semdir um að Mario, eins og hann var kall­aður, hafi lát­ist án þess að utan­að­kom­andi aðilar hafi haft þar áhrif á. „Eina skýr­ingin sem ég sé er að hann hafi gert það vegna þess að hann ótt­að­ist um vini sína eða fjöl­skyldu.“

Skilja ekki hvað gerðist Ættingjar og vinir Mariuszar Robak skilja ekki hvað olli því að hann stytti sér aldur. Þau telja að einhver hafi orðið þess valdandi að hann sá ekki aðra leið.

Hinn 26. júlí síð­ast­lið­inn hafði Agata Robak sam­band við pólsku lög­regl­una og til­kynnti að eig­in­maður hennar, Mariusz Robak, væri horf­inn á Íslandi. Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var gert við­vart sam­stundis. Agata hafði einnig sam­band við mág sinn, Pawel Robak, sem er lög­reglu­maður í Póllandi og upp­lýsti hann um að Mariusz hefði sent sér tal­skila­boð sem mátti skilja sem svo að hann væri örvinglaður og hugs­an­legt væri að hann myndi stytta sér aldur. Agata hafði sömu­leiðis sam­band við besta vin eig­in­manns síns, Aaron Glowacki, sem einnig var búsettur hér á landi. Aaron brást við með því að hefja strax leit að vini sínum Mariuszi. Hann fór vítt og breitt og tal­aði við alla sem mögu­lega gætu vitað eitt­hvað um ferðir Mariuszar en án árang­urs.

Að tveimur dögum liðnum var Aaron staddur í Mos­fellsbæ við leit að vini sínum, á stað sem hann hafði kynnt fyrir Mariuszi þegar hann kom fyrst til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár