Stóra spurningin í rannsókn Seðlabankamáls Samherja og Namibíumálsins er sú sama

Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóra rann­saka nú útgerð­ar­fé­lagið Samherja vegna starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namiibíu. Það sem liggur undir í rann­sókn­inni er meðal ann­ars sú spurn­ing hvort Þor­steinn Már Bald­vins­son hafi stýrt rekstr­inum frá Íslandi og beri ábyrgð á mútu­greiðslum og því að skatt­greiðslur skil­uðu sér ekki til Íslands.

Stóra spurningin í rannsókn Seðlabankamáls Samherja og Namibíumálsins er sú sama
Dóms­málið varp­aði ljósi á málið Dómsmál Samherja gegn Seðla­banka Íslands varp­aði ljósi á for­sendur rann­sóknar bank­ans. Meðal ann­ars eru birt brot í dómnum úr bréfum emb­ættis Sérstaks sak­sókn­ara um rann­sókn­ina sem ekki eru opin­ber. Þor­steinn Már Bald­vins­son sést hér í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í sept­em­ber. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ein af stóru spurn­ing­unum í rann­sóknum íslenskra aðila á útgerð­ar­fé­lag­inu í Seðla­banka­mál­inu svo­kall­aða og Namib­íu­mál­inu er á end­anum sú hvort dótt­ur­fé­lögum útgerð­ar­fé­lags­ins hafi verið stjórnað frá Íslandi. Það er að segja hvort for­stjóri sam­stæð­unnar, Þor­steinn Már Bald­vins­son, hafi sann­ar­lega verið sá sem í reynd hefur stýrt dótt­ur­fé­lögum Samherja í Afríku. Í laga­máli er þessi spurn­ing orðuð svo hvort „raun­veru­leg fram­kvæmda­stjórn“ dótt­ur­fé­laga Samherja erlendis, meðal ann­ars á Kýpur og í Namibíu, hafi verið á Íslandi og á hendi Þor­steins Más.

Svarið við þess­ari spurn­ingu skipti máli í Seðla­banka­mál­inu, rann­sókn Seðla­banka Íslands, sér­staks sak­sókn­ara og emb­ættis skatt­rann­sókn­ar­stjóra, á ætl­uðum brotum Samherja á lögum um gjald­eyr­is­mál á árunum eftir hrunið 2008 þegar gjald­eyr­is­höft voru á Íslandi. 

Sér­stakur sak­sókn­ari felldi rann­sókn máls­ins niður vegna mis­taka sem gerð voru við setn­ingu reglna um gjald­eyr­is­mál haustið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár