Donald Trump Banda­ríkja­for­seti seg­ist rang­lega hafa unnið kosn­ing­arnar, ef litið er til taln­ing­ar­innar eins og hún stendur. Mynd: MANDEL NGAN / AFP

Trump lýsir yfir sigri, þvert á talningu

Nið­ur­stöður for­seta­kosn­inga vest­an­hafs liggja ekki fyrir og atkvæði úr póst­kosn­ingu eru mörg ótalin. Engu að síður seg­ist Donald Trump for­seti hafa unnið og boðar bar­áttu fyrir hæsta­rétti.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti seg­ist hafa sigrað kosn­ing­arnar, þrátt fyrir að taln­ingu sé langt frá því lokið í mörgum lyk­il­ríkjum sem valda úrslitum um hvaða fram­bjóð­andi vinnur. Hann seg­ist munu berj­ast fyrir hæsta­rétti til að vinna kosn­ing­arnar.

Til­kynnti Trump þetta í ræðu fyrir stuðn­ings­mönnum sínum rétt í þessu. Frétta­menn í sjón­varpi leið­réttu mál­flutn­ing hans sam­stundis eftir að honum var lokið, en nið­ur­stöður kosn­ing­anna liggja ekki fyrir og munu lík­lega ekki gera með óform­legum hætti fyrr en á næstu dögum.

„Þetta eru svik gegn banda­rískum almenn­ingi, þetta er þjóð­ar­skömm, við erum til­búin til að vinna þessar kosn­ingar og, í hrein­skilni, unnum við þessar kosn­ingar,“ sagði for­set­inn.

Sagði Trump að hæsti­réttur gæti þurft að skera úr um nið­ur­stöð­una, en árið 2000 stöðv­aði rétt­ur­inn end­ur­taln­ingu atkvæða í Flórída þegar George W. Bush og Al Gore börð­ust um for­seta­emb­ættið. Trump skip­aði nýlega nýjan dóm­ara við rétt­inn, Amy Coney Barrett, eftir and­lát Ruth Bader Ginsburg. Þykir Barrett íhalds­söm og nýtur hún stuðn­ings Repúblikana­flokks for­set­ans.

Ungir stuðn­ings­menn TrumpÞessir krakkar og for­eldrar þeirra létu vel í sér heyra við kjör­stað í Miami.
Black Lives MatterTyrone Carter, fyrrum NFL leik­maður, ásamt ungum stuðn­ings­mönnum Joe Biden.

Ekki verður skorið úr um sig­ur­veg­ara í ríkj­unum Penn­syl­vania og Michigan fyrr en í viku­lok, en Joe Biden, fram­bjóð­andi Demókrata þarf að ná árangri þar til að tryggja sér sig­ur­inn. CBS frétta­stofan til­kynnti rétt í þessu að Biden hefði unnið í rík­inu Virginia. Wisconsin og Georgia eru einnig í spil­inu fyrir báða fram­bjóð­endur. Mjótt er því á mun­unum og óvíst hvor fram­bjóð­end­anna vinnur þar til atkvæði úr póst­kosn­ingu hafa verið talin.

Joe Biden og Jill BidenFor­seta­fram­bjóð­and­inn og eig­in­kona hans í Chase Center í Wilmington í nótt.
Donald Trump og Melania TrumpFor­set­inn og eig­in­kona hans í Hvíta hús­inu snemma í morgun.

Samkvæmt öllum helstu frétta­stofum hefur Trump unnið í Flórída, Texas og Ohio.  Alls þarf fram­bjóð­andi að hljóta 270 kjör­menn til þess að vinna, en fjöldi þeirra er mis­mun­andi eftir ríkjum. Frétta­stofur vest­an­hafs segja Biden nú hafa fengið 225 kjör­menn, en Trump 213.

Stuðn­ings­menn BidenÁhyggju­fullir stuðn­ings­menn Joe Biden fylgj­ast með úrslitum kosn­ing­anna á risa­skjá við Hvíta húsið í nótt.
Fagn­að­ar­lætiStuðn­ings­menn Trump fagna á kosn­inga­vöku í skot­færa­versl­un­inni Huron Vally Guns í Michigan í nótt.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár