Segir starfsumhverfið í Vinstri grænum ekki heilbrigt

Andrés Ingi Jónsson segir aðskiln­að­ar­kúltúr hafa ein­kennt starfið innan þing­flokks Vinstri grænna. Flokk­ur­inn hafi þá gefið allt of mikið eftir í stjórn­ar­sátt­mála og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi of mikil völd. Þá segir hann Sjálf­stæð­is­flokk nýta COVID-krepp­una til að koma að umdeildum málum.

Ekki á leið í starfandi flokk Andrés Ingi segir að hann muni starfa sem óháður þingmaður út kjörtímabilið. Hann hafi áhuga á að starfa áfram í stjórnmálum en sér ekki fyrir sér að ganga til liðs við einhvern þeirra flokka sem nú eiga fulltrúa á Alþingi.

Andrés Ingi Jónsson upp­lifði að ekki væri hlustað á hans skoð­anir og að hans sjón­ar­mið skiptu ekki máli, að upp­lýs­ingum væri haldið frá honum og að sam­starfið innan þing­flokks Vinstri grænna hafi ekki verið heil­brigt.

Vegna þessa sagði Andrés Ingi sig úr flokknum fyrir tæpu ári síðan en einnig vegna þess að honum þótti flokk­ur­inn hafa sveigt veru­lega af leið frá stefnu­málum sínum og samið frá sér flest þau lyk­il­mál sem Vinstri græn hefðu átt að standa vörð um. Þannig hafi meðal ann­ars verið búið að semja undan Guðmundi Inga Guð­brands­syni megnið af stóru mál­unum þegar hann sett­ist í stól umhverf­is­ráð­herra. Áherslum rík­is­stjórn­ar­innar sé í miklum mæli stýrt af Sjálf­stæð­is­flokknum, bæði í gegnum stjórn­ar­sátt­mála stjórn­ar­innar en einnig með því valdi sem felst í að flokk­ur­inn fari með fjár­mála­ráðu­neytið.

Andrés Ingi segir að hann sé dapur yfir því hvernig komið sé fyrir flokknum sem hann tók þátt í að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár