Tengsl Kínverja inn í samfélagið aukist undanfarinn áratug

Baldur Þórhallsson prófessor segir Ísland hafa sýnt samvinnu við Kína mikinn áhuga, en afrakstur hennar hafi ekki orðið eins mikill og látið var uppi. Hann segir Mike Pence, vara­forseta Banda­ríkjanna, hafa sent Íslendingum skýr skilaboð: „Hingað og ekki lengra“.

Baldur Þórhallsson
Baldur Þór­halls­son Pró­fessor í stjórn­mála­fræði sem hefur rann­sakað aukin tengsl Kína og Ísland frá því upp úr alda­mótum segir ákveðið hik hafa komið á sam­starfið nýverið. Mynd: Kristinn Ingvarsson

Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmála­fræði við Háskóla Íslands, segir að hik hafi komið á samvinnu Íslands og Kína undan­farin ár eftir að Banda­ríkin fengu aftur meiri áhuga á samstarfi við Ísland. Frá því fyrir hrun hafi hins vegar verið mikill áhugi á auknum umsvifum Kína á Íslandi, margir samningar verið gerðir og ýmislegt á teikniborðinu. Þetta hafi verið bandarískum stjórn­völdum þyrnir í augum og Mike Pence vara­forseti sent skýr skilaboð um að Íslendingar skyldu ekki ganga of langt.

Baldur vinnur nú ásamt Snæfríði Gríms­dóttur Michelsen að rannsóknar­verkefni um samskipti Íslands og Kína frá 2005 til dagsins í dag, sér í lagi pólitíska, efnahags­lega og samfélags­lega samvinnu ríkjanna. Hann segir íslensk stjórn­völd hafa farið að leitast eftir nánara viðskipta­sambandi við Kína um miðjan síðasta áratug, eða um það leyti sem Banda­ríkin drógu úr samvinnu við Ísland, en her þeirra yfirgaf landið árið 2006. Úr þeirri vinnu kom til dæmis …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kínverski leynilistinn

ErlentKínverski leynilistinn

Spáir kínverskri útþenslu­stefnu

Fregnir af gagna­söfnun kínverskra yfirvalda um erlent áhrifa­fólk um allan heim vekja ekki síst spurningar um fyrir­ætlanir Kínverja í alþjóða­stjórnmálum í fram­tíðinni og vaxandi ítök og áhrifa­mátt þeirra innan fjölda erlendra ríkja. Virtur en umdeildur bandarískur fræði­maður segir Kínverja haga sér með sama hætti og Banda­ríkin hafi gert til að hösla sér völl á alþjóða­sviðinu á sínum tíma – það sé bæði áhyggju­efni og vegvísir um fram­haldið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár