Skora á Persónuvernd að hefja rannsókn á Útlendingastofnun

Hjálpar­samtökin Solaris hafa sent áskorun til Umboðs­manns Alþingis, Umboðs­manns barna og Persónu­verndar um að taka miðlun Útlendinga­stofnunar á persónu­upplýsingum Khedr-fjöl­skyldunnar til athugunar.

Frá mótmælum
Frá mót­mælum Hópur fólks mót­mælti með­ferð­inni á Khedr-fjöl­skyld­unni síð­ast­lið­inn þriðju­dag.

Hjálpar­samtökin Solaris gera alvarlegar athugsemdir við miðlun Útlendinga­stofnunar á persónu­upplýsingum um fjölskyldu­meðlimi Khedr-fjöl­skyldunnar egypsku. Til stóð að flytja fjöl­skyldunar nauðuga úr landi 16. september síðastliðinn en það tókst ekkki. Fer fjöl­skyldan nú huldu höfði en lögregla leitar hennar.

Síðustu daga hefur Útlendinga­stofnun miðlað ýmsum persónu­upplýsingum um fjölskyldu­meðlimi, þar á meðal upplýsingum úr viðtölum við fjölskyldu­meðlimi við meðferð umsóknar þeirra um alþjóð­lega vernd hér á landi. Þannig var fjallað um viðkvæm persónuleg málefni í tilkynningu á vef Útlendinga­stofnunar 22. september síðastliðinn, í tengslum við mögulegar kynfæra­limlestingar í Egypta­landi.

„Sú ákvörðun stofnunarinnar að opinbera upplýsingar um þessa einstaklinga virðist þjóna þeim tilgangi einum að hafa áhrif á almennings­álit í máli þeirra“ 

Þá hafi verið settar fram upplýsingar um gildis­tíma persónu­skilríkja fjölskyldu­meðlima og samskipti er vörðuðu fram­lengingu þeirra af hálfu starfs­manna Útlendinga­stofnunar.

Telja að um gróf brot á persónuvernd sé að ræða

Solaris telja með þessari framgöngu hafi Útlendinga­stofnun brotið gegn ákvæðum um réttindi og skyldur starfs­manna ríkisins, stjórnsýslu­lögum og ákvæðum laga um persónu­vernd og vinnslu persónu­upplýsinga. Það hafi Útlendinga­stofnun og einstakir starfs­menn gert með því að hafa ekki haldið þagnar­skyldu og miðlað viðkvæmum persónu­upplýsingum um máls­meðferð, máls­ástæður og persónuleg málefni fjölskyldu­meðlima.

„Sú ákvörðun stofnunarinnar að opinbera upplýsingar um þessa einstaklinga virðist þjóna þeim tilgangi einum að hafa áhrif á almennings­álit í máli þeirra. Verður þetta að teljast sérstak­lega ámælis­vert þegar um er að ræða einstaklinga í viðkvæmri stöðu, þar á meðal ung börn, en persónu­upplýsingar barna njóta sérstak­lega ríkrar verndar,“ segir í tilkynningu Solaris, sem Sema Erla Serdar, formaður stjórnar ritar undir.

Samtökin hafa því sent áskorun til Persónu­verndar, Umboðs­manns Alþingis og Umboðs­manns barna um að taka málið til frumkvæðis­athugunar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár