Mynd: ANGELOS TZORTZINIS / AFP

Tifandi tímasprengja sem sprakk

12.000 mann­eskjur þar af 5000 börn sem flúðu Moria flótta­manna­búð­irnar þegar eldur braust þar út í síð­ustu viku hafa síð­ustu daga verið að slá upp tjald­búðum á götum úti i nágrenni búð­anna. „Ástandið er ömur­legt,“ segir tals­kona Lækna án landamæra í sam­tali við Stundina. Óttast er að kór­óna­veirusmitum fjölgi hratt því ekki hefur tek­ist að finna 27 ein­stak­linga úr búð­unum sem eru smit­aðir og voru í ein­angrun.

„Örvænt­ingin er alltum­lykj­andi í lífi hæl­is­leit­enda og flótta­fólks sem nú hefst við á götum úti í nágrenni Moria búð­anna eftir elds­voð­ann í síð­ustu viku sem lagði þær í rúst. Fólkið er mjög ótta­slegið, sér­stak­lega for­eldrar ungra barna og sjúk­ling­arnir í hópnum eru hræddir og þeir eru margir,“ segir Dora Vangi tals­kona Lækna án landamæra en hún var stödd við flótta­manna­búð­irnar þegar Stundin náði tali af henni. Samtökin hafa starf­rækt tvær heilsu­gæslu­stöðvar við Moria flótt­manna­búð­irnar á eyj­unni Lesbos á Grikk­landi. Önnur stöðin er fyrir allt fólk sem þarf aðstoð lækna og sál­fræð­inga hin er sér­stak­lega ætluð verð­andi mæðrum og hvít­voð­ungum.

Eftir brun­ann hefur hjúkr­un­ar­fólk verið á ferð­inni á svæð­inu í kringum búð­irnar þar sem flótta­fólkið er, til að kanna ástand þess. Allt fólkið sem hafð­ist við í búð­unum, um 12.000 tals­ins, þar af um 5000 börn flúði eld­inn sem kvikn­aði aðfar­arnótt mið­viku­dags og hefur síð­ustu daga verið að slá upp …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár