Samhent fjöl­skylda Þrátt fyrir að vera óhefð­bundin fjöl­skylda er Star­haga­fjöl­skyldan ein­stak­lega sam­heldin. Myndin er tekin fyrr í sumar, áður en litla dóttir þeirra Álfrúnar og Árna kom í heim­inn.

Óhefðbundin fjölskylda leggur undir sig götu

Sama fjöl­skyldan ýmist býr, byggir eða hefur keypt hús við Starhaga í Reykja­vík. Í miðj­unni byggir ungt par yfir sig og nýfædda dóttur sína en hvort sínum megin við búa afar barns­ins ann­ars vegar og hins vegar amman sem fest hefur kaup á húsi þar.

Við Starhaga í Vesturbæ Reykja­víkur, niðri við Ægisíðu, hafa staðið yfir bygg­inga­fram­kvæmdir á tveimur lóðum frá því í vor. Það er í sjálfu sér ekki í frá­sögur fær­andi, bygg­inga­fram­kvæmdir eru dag­legt brauð vítt og breitt um borg­ina. Það sem er hins vegar athygl­is­vert við fram­kvæmd­irnar er sú stað­reynd að þegar flutt verður inn í húsin tvö mun sama fjöl­skyldan búa í þremur húsum, hlið við hlið í göt­unni. Í miðj­unni er ungt par með litla dóttur að byggja við hlið­ina á öfum litla barns­ins, sem þegar búa við Starhaga, og hinum megin hefur amman fest kaup á húsi sem þangað var flutt. Móðirin segir bros­andi ótt­ast að stelpan litla verði alin upp á frost­pinnum.

Fjöl­skyldan sem er svo sam­hent sam­anstendur af par­inu Álfrúnu Perlu Bald­urs­dóttur og Árna Frey Magn­ús­syni og dóttur þeirra, sem er svo nýkomin í heim­inn að hún hefur ekki enn fengið nafn. Þau standa nú í hús­bygg­ingu …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár