Þrjár konur tilkynntu sama lækni til landlæknis

Læknir á Land­spít­al­anum var í tvígang kærður fyrir kyn­ferð­is­brot. Málin voru felld niður, lækn­ir­inn lýsti sak­leysi og hélt áfram að sinna börnum. Spít­al­inn seg­ist ekki vera aðili að slíkum málum. Konurnar til­kynntu lækn­inn til land­læknis ásamt þriðju kon­unni en fleiri lýsa sömu reynslu. Eftir stendur spurn­ing um hversu langt læknar megi ganga og hvort það þyki ásætt­an­legt að sjúk­lingar séu í sárum á eftir. „Mig langar að vita hvort það mátti koma svona fram við mig,“ segir ein.

Þrjár konur tilkynntu sama lækni til landlæknis

Ung kona sem hefur glímt við lang­vinnan sjúk­dóm allt frá barn­æsku lýsir kvíð­anum sem fylgdi lækn­is­skoð­unum, sem voru fastur liður í lífi hennar allt frá unga aldri. Hún segir að í þessum skoð­unum hafi lækn­ir­inn gengið svo gróf­lega yfir mörkin hennar að hún upp­lifi það sem kyn­ferð­is­brot. Jafnvel þótt for­eldrar hennar og hjúkr­un­ar­fræð­ingur hafi nán­ast ávallt verið við­stödd hafi lækn­ir­inn lyft upp bol hennar og gægst ofan í bux­urnar, jafn­vel snert hana á ótil­hlýði­legan hátt.

Lækn­ir­inn sem um ræðir hafnar því alfarið og segir: „Mér þykir ákaf­lega leið­in­legt að verða fyrir svona ásök­unum. Auðvitað er það það.“ Þar sem hann var einn af fáum sér­fræð­ingum á sínu sviði og hefur ekki verið fund­inn sekur þá er hvorki greint frá nafni hans hér né sér­grein. Rétt er þó að taka fram að mað­ur­inn starf­aði ekki á kvenna­deild eða sviði sem varðar kyn­ferð­is­mál beint, en fékkst við sjúk­dóma þar sem mik­il­vægt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár