„Það er ekki hægt að spila þennan leik með þeim spilum sem voru gefin í byrjun“

Mælirinn er fullur að sögn Loga Pedro og þol­in­mæðin fyrir ras­isma er að þrotum komin. Hann horfir til sögu svartra í alþjóð­legu sam­hengi, en heim­færir stöð­una: „Ég á sjálfur svo sterka fjöl­skyldu­sögu þegar kemur að þræla­haldi,“ segir Logi og áréttar mik­il­vægi þess að fólk taki afstöðu.

Heim­ur­inn brennur, en það voru ekki þau sem kveiktu bálið, það log­aði alltaf neisti. Dauði George Floyd var kveik­ur­inn en sinan fuðrar nú upp hring­inn í kringum hnött­inn. Fólk hvaðanæva að sam­ein­ast nú í sorg og reiði gegn ban­vænum ras­isma, gegn kerfum sem mis­muna á grund­velli lit­ar­hafts og menn­ingar. Það er samt ekki nóg að vera sorg­mæddur eða reiður, raun­veru­legar breyt­ingar þurfa að fylgja og þær munu ekki eiga sér stað að sjálfs­dáðum. „Fólk hlýtur að átta sig á því að það er engin þol­in­mæði fyrir þessu lengur. Ég sjálfur hef enga þol­in­mæði,“ segir tón­list­ar­mað­ur­inn Logi Pedro Stef­áns­son, sem hefur fengið sig fullsaddan af óbreyttu ástandi. 

Logi telur hinn almenna Íslend­ing ekki átta sig fylli­lega á stöð­unni sem ríkir, hvernig kerfið í Banda­ríkj­unum er hannað til þess að kúga og und­ir­skipa svart fólk. „Það er bara mjög eðli­legt að allt hafi sprungið, þetta er ástand sem er búið að vera í gangi í mörg hund­ruð ár,“ segir hann og vísar til eld­fimra mót­mæla vest­an­hafs. Logi segir skipta miklu máli hvaða afstöðu fólk tekur, því það sé ekki hægt að vera afstöðu­laus, þeir sem þykj­ast ekki taka afstöðu taki afstöðu með óbreyttu ástandi. Nauð­syn­legar breyt­ingar munu þó ekki eiga sér stað fyrr en fólk í for­rétt­inda­stöðu áttar sig á því að þetta er þeirra vanda­mál að leysa, ekki hinna und­ir­skip­uðu sem hinir sýna aðeins sam­hug með. 

Mikilvægt að taka afstöðu

Stundin fjall­aði um þung orð sem Logi Pedro lét falla um Morg­un­blaðið og Við­skipta­blaðið á Facebook-síðu sinni. Þar hvatti hann fólk til þess að gera ekki lítið úr þeim raun­veru­legu og oft ban­vænu vanda­málum sem svart fólk í Banda­ríkj­unum stendur frammi fyrir. Skila­boðin eru þó ekki aðeins sér­tæk, heldur gilda þau einnig um stöðu svartra í alþjóð­legu sam­hengi. Logi Pedro lýsir veru­leik­anum sem svartir Banda­ríkja­menn standa frammi fyrir sem hel­för og hvetur fólk til þess að taka afstöðu gegn henni. Sem þeldökkur maður standa þessi mál honum sér­stak­lega nærri, en það er saga móður hans af vinnuman­sali í barn­æsku sem hefur ekki síður verið leið­andi afl í bar­áttu hans á síð­ari árum. Þótt hann telji ástandið á Íslandi ekki vera jafn slæmt og í Banda­ríkj­unum, séu hendur okkar langt frá því að vera hreinar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár