Sjálfrennireiðar

Í fram­tíð­inni mun það eflaust vekja furðu hversu mikið hefur verið lagt undir bíla.

Sjálfrennireiðar
Vegur 62 Liggur til Funn­ingur á Eysturoy, Færeyjum. Mynd: Páll Stefánsson

Þegar sagn­fræð­ingar líta til baka eftir hund­rað ár verður það sem kemur þeim lík­lega mest á óvart öld bíls­ins, frá 1920 til 2020. Hverning þetta tæki náði svona mik­illi útbreiðslu, brenn­andi jarð­efna­elds­neyti hægri vinstri. Hvað það voru settir miklir aurar í að byggja vegi, göng og brýr til að kom­ast frá a til b. Og hversu mikið borg­ar­land fór undir bif­reiðar, í formi bíla­stæða og gatna. 

Pan American Highway 30 þúsu Líma, höf­uð­borg Perú. Alls tekur 22 sól­ar­hringa að keyra veg­inn á enda.

Heimsins lengsti vegur

Í upp­hafi bíla­ald­ar­innar, fyrir 97 árum, voru lögð drög að lengsta vegi ver­aldar, Pan American Highway. Vegurinn er rúm­lega 30.000 km langur, frá Saga­van­irktok, 400 km norðan við heim­skauts­baug í Alaska, og alla leið suður til Ushuaia við Eldland Argent­ínu. Vegurinn var að mestu klár­aður í atvinnu­bóta­vinnu eftir krepp­una miklu 1929. Hraða­metið að aka þennan langa veg, alla þessa 30.000 km gegnum 14 lönd, eru 22 sól­ar­hringar. 

Ef manni leið­ist að keyra svona langt, þá eru Færeyjar upp­lagðar, en lengsti spott­inn að keyra (án þess að taka ferju) er um 70 km, frá Kirkjubæ sunnan við Þórshöfn og norður í Við­ar­eyði á Vidoy. Ótrúlega fal­leg leið. 

Sala á bílum hrynur

Í þess­ari heimskreppu sem nú er, þá eru bif­reiða­fram­leið­endur næst á eftir ferða­manna­iðn­að­inum sem tapa mestu. Fólk heldur að sér höndum, sala á nýjum bílum hefur hrunið. Verk­smiðjur eru að loka úti um allan heim. En á síð­asta ári voru fram­leidd  97 millj­ónir öku­tækja. Kreppan nú flýtti bara ferli sem var þegar hafið. Jafnvel bíla­borgir eins og New York City voru byrj­aðar að þrengja að einka­bílnum. Bara á síð­asta ári var bíla­stæðum í borg­inni fækkað um 6.100, til að skapa pláss fyrir hjóla­stíga. Aðrar banda­rískar borgir, eins og Portland, Austin og Boston, eru með metn­að­ar­full plön um að gera borg­irnar eins hjóla­vænar og þekk­ist nú í norð­an­veðri Evrópu. 

Íslendingar með bronsið

Hér heima hefur einka­bíll­inn enn ansi sterka stöðu; við erum í þriðja sæti á heims­vísu með 824 bíla á hverja 1.000 íbúa. Efstir eru Nýsjá­lend­ingar með 860 bíla meðan Banda­ríkja­menn eru í öðru sæti með 838 bíla. Botns­ætið verma íbúar afríska eyrík­is­ins São Tomé and Príncipe með bara 2 bíla á hverja 1.000 íbúa. Sómalía er með 3 og Bangla­dess í þriðja neðsta sæti með 4, en þar, þrátt fyrir það, hef ég aldrei á minni ævi lent í meira umferð­ar­öng­þveiti en í höf­uð­borg­inni Dakka. Og ekki er ástandið betra þegar upp í sveit er komið, það tók mig átta tíma að aka 100 km spotta eftir hrað­braut­inni frá næst­stærstu borg­inni, Chittagong, suður að landa­mærum Búrma. Sjálfrenni­reiðar af öllum gerðum, bak í bak alla leið­ina. 

Leigu­bíll í DakkaÞótt víð­ast hvar séu fleiri bílar í borgum heims­ins er umferð­ar­öng­þveitið í höf­uð­borg Bangla­dess engu líkt.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár