Föst á Íslandi og fá ekki laun

Núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­fólk Messans upp­lifir sig svikið af eig­endum fyr­ir­tæk­is­ins. Þau lýsa erf­iðum starfs­að­stæðum og eru sum hver föst á Íslandi án launa. Starfs­fólkið seg­ist ekki hafa verið látið vita af Covid-smiti í hópnum. Fram­kvæmda­stjóri seg­ist sjálfur ekki eiga pen­inga fyrir mat eða hús­næð­is­lánum.

Föst á Íslandi og fá ekki laun

„Ég var búin að vinna svo mikið og svo lengi að ónæm­is­kerfið mitt var orðið að engu.“ Svona lýsir einn starfs­maður sjáv­ar­rétta­stað­ar­ins Messans ástand­inu sem hún var í eftir vet­ur­inn. Þéttur kjarni af starfs­fólki, sem var búinn að vinna á staðnum í lengri tíma, seg­ist hafa unnið myrkr­anna á milli til að fylla í vaktir er þjónum á vakt var fækkað úr sex í þrjá til að minnka kostnað fyr­ir­tæk­is­ins.

Þrátt fyrir erf­iðan róður seg­ist starfs­fólkið hafa gert það af ást fyrir staðnum. Það talar um hvað annað sem fjöl­skyldu sína, en í fyrri tíð hafði það eytt bæði vinnu- og frí­stundum saman, og gjarnan fengið sér bjór saman eftir vakt­ina. En síð­asta vetur seg­ist það hafa verið of þreytt og útslitið eftir vakt til að gera eitt­hvað annað en að fara beint heim að sofa.

Starfs­fólkið seg­ist ekki hafa upp­lifað að þessi holl­usta og fórn­fýsi þeirra hafi verið verð­launuð, en bæði útibú Messans lok­uðu í mars sökum COVID-19 far­ald­urs­ins. Öllu starfs­fólki Messans á Granda var sagt upp án launa 31. mars og starfs­fólk mið­bæj­ar­úti­bús­ins var snuðað um meiri­hluta síð­ustu launa­greiðslu sinnar, og svo hlut fyr­ir­tæk­is­ins í hluta­bóta­leið rík­is­ins. Þar að auki segj­ast starfs­menn á vakt ekki hafa verið tjáð af yfir­mönnum þegar einn þeirra greind­ist með veiruna. Að minnsta kosti einn annar starfs­maður af þeirri vakt smit­að­ist.

Fram­kvæmda­stjóri segir stöðu fyr­ir­tæk­is­ins ekki koma starfs­fólk­inu við. Hann sagð­ist sjálfur ekki eiga pen­inga fyrir mat, reikn­ingum eða til að borga hús­næð­is­lán. Meiri­hluta­eig­andi á hluta í öðrum fyr­ir­tækjum og átti félag í skatta­skjólum sem var opin­berað í Panama­skjöl­unum.

Sam­skipti milli eig­anda og starfs­fólks hafa fjarað út og öll lof­orð um greiðslur orðið að engu, en starfs­fólk lýsir þess­ari hegðun sem djúp­stæðum svikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár