Táknmyndir á víðavangi

COVID-far­ald­ur­inn og kreppan í kjöl­farið á sér tákn­mynd sem liggur tvist og bast um sam­fé­lagið.

Áður var það fyrsta sem mætti okkur þegar við komum inn í mat­vöru­búð ein­hver æsi­leg til­boð eða upp­still­ingar á vöru, sem nauð­syn­lega þurfti að koma út eða var ný á mark­aði. Núna taka spritt­brúsar og einnota gúmmí­hanskar í kassa­vís á móti okkur. Þeir eru oft bláir, stundum hvítir. 

Þegar við drögum þessa bláu á hend­urnar erum við komin með strumpa­hendur. Þessir hvítu eru eins og ferm­ing­ar­hanskar. Eða hanskar hefð­ar­meyjar í fínu dömu­boði, þar sem hún lyftir tebolla úr næf­ur­þunnu postu­líni að vörum sér og nartar sett­lega í litlar sam­lokur og sætar kökur.

Ef lánið leikur við mann býður búðin upp á hanska í mis­mun­andi stærðum. Small, medium og large. Það er nefni­lega ekk­ert one size fits all þegar kemur að gúmmí­hönskum. 

Í sumum búðum er bara boðið upp á large. Smá­hentir eru farnir að forð­ast þær búðir.

Í upp­hafi far­ald­urs­ins kímdu margir við­skipta­vinir mat­vöru­versl­ana þegar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár