Borgun - frá ríkinu til Engeyinga og þaðan til Cayman-eyja

Sala Lands­bankans á Borgun var valin „verstu viðskipti ársins“ og mál henni tengt er enn fyrir dómstólum. Borgun, sem gaf út fyrsta kredit­kortið á Íslandi, verður hluti af neti tækni­fyrirtækja í eigu brasilískra aðila sem ætla í samkeppni við banka með stuðningi Warren Buffett.

Sölunni á Borgun mótmælt
Sölunni á Borgun mót­mælt Steinþór Pálsson, banka­stjóri Lands­bank­ans þegar Borgun var seld, hefur sagt að mis­tök hafi átt sér stað við söl­una. Mynd: Pressphotos

Nýir stjórn­endur korta­fyrir­tækisins Borgunar eru Brasilíu­menn með skrif­stofu í London, en félag eigendanna er skráð í skúffu á Cayman-eyjum. Hlutur í fyrir­tækinu, sem sinnir færslu­hirðingu, korta­útgáfu og útlána­þjónustu, hafði áður verið seldur úr ríkis­bankanum Lands­bankanum í lokuðu söluferli til aðila sem tengjast Bjarna Benedikts­syni fjármála­ráðherra.

Í mars var tilkynnt að Íslands­banki hefði selt 63,5 prósenta hlut sinn í Borgun til félagsins Salt Pay Co Ltd. Samhliða því kaupir Salt Pay einnig hlut Eignarhalds­félagsins Borgunar slf. í Borgun og eignast þar með 95,9 prósent í Borgun, sem upphaf­lega var stofnað 1980 og gaf út fyrsta kredit­kortið á Íslandi. Samkvæmt heimildum Stundarinnar skoðuðu kaupendurnir einnig félögin Valitor og Korta, sem starfa á sama sviði.

En málaferli standa enn yfir vegna fyrri sölu á hlut í Borgun úr Lands­bankanum til fjárfesta og stjórn­enda félagsins, en í þeim hópi var Einar Sveinsson, föður­bróðir Bjarna. Sem fjármála­ráðherra þá og nú er Bjarni yfir …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgunarmálið

Úttekt

Hæg heimatök: Um aðgengi fjöl­skyldu Bjarna Benedikts­sonar að fjármunum ríkisins

Fyrirtæki tengd fjöl­skyldu Bjarna Benedikts­sonar fjármála­ráðherra hafa frá því Bjarni hóf afskipti af stjórn­málum verið stórtæk í samningum og viðskiptum við ríkið. Hafa þau gert einstaka ívilnana­samninga við yfirvöld, keypt eignar­hlut fyrir­tækja í eigu ríkisins án formlegra söluferla og notið góðs af laga­setningum Bjarna. Eyjan fjallaði um viðskipti ráðherrans í fyrra.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár