Yfirlýstur andstæðingur Mannréttindadómstólsins flutti erindi á afmæli Hæstaréttar

Danskur pró­fessor sem er þekktur fyrir að vilja að Danir hætti að lúta dómum Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu flutti ávarp á afmæl­is­sam­komu Hæsta­réttar. Boðið vekur athygli þar sem máls­með­ferð Íslands vegna Lands­rétt­ar­máls­ins hjá yfir­deild MDE stendur nú yfir.

Yfirlýstur andstæðingur Mannréttindadómstólsins flutti erindi á afmæli Hæstaréttar
Mads Bryde Andersen Pró­fess­or­inn flutti erindi á afmæli hæsta­réttar, en hann hefur hvatt Dani til breyta lögum svo dómar Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu telj­ist ekki bind­andi í Danmörku.

Dönskum pró­fessor, sem er þekktur fyrir harða and­stöðu sína við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu (MDE), var boðið að halda ræðu á hátíð­ar­sam­komu um helg­ina í til­efni af 100 ár afmæli Hæsta­réttar Íslands.

Pró­fess­or­inn, Mads Bryde Andersen, hefur meðal ann­ars hvatt Dani til að kom­ast hjá því að dómar MDE telj­ist bind­andi þar í landi. Forseti og vara­for­seti Hæsta­réttar tóku ákvörðun um að erindi hans yrði hluti af dag­skránni.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar þykir mörgum lög­mönnum und­ar­legt að pró­fess­or­inn hafi verið val­inn til að halda ávarp, í ljósi þess að fyrir yfir­deild MDE liggur nú mál sem varðar íslenska rétt­ar­kerfið. MDE dæmdi í mars í fyrra íslenska ríkið brot­legt vegna vinnu­bragða Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra þegar hún skip­aði fjóra dóm­ara við Lands­rétt í trássi við mat hæfn­is­nefndar sum­arið 2017. Íslensk stjórn­völd áfrýj­uðu mál­inu til yfir­deildar MDE og fór mál­flutn­ingur fram 5. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Umdeild andstaða við Mannréttindadómstólinn

Hátíð­ar­sam­koman fór fram í Þjóð­leik­hús­inu í gær og fluttu þar erindi for­seti Íslands, ráð­herrar, stjórn­mála­menn og núver­andi og fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­arar. Á meðal gesta var fjöldi lög­manna, emb­ætt­is­manna, sendi­herra, starfs­manna rétt­ar­kerf­is­ins og stjórn­ar­ráðs­ins, háskóla­fólks og þing­manna.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar komu margir ræðu­manna inn á yfir­stand­andi máls­með­ferð yfir­deildar MDE í ávörpum sínum. Þá flutti danski pró­fess­or­inn Mads Bryde Andersen fyr­ir­lest­ur­inn „Domstolsakti­visme i og uden for Nordisk ret“ um það þegar dóm­arar ganga lengra en áður með ákvörð­unum sínum og marka stefnu út fyrir þau mörk sem dóm­stólar hafa miðað við áður.

Andersen hefur verið afar gagn­rýn­inn á MDE og sagt dóm­stól­inn snúa fjölda málum aðilda­ríkj­anna upp í mann­rétt­inda­mál sem ekk­ert hafi með slíkt að gera. Hann hefur fært fyrir því rök að Danir geti sagt sig frá Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu, sem dóm­stóll­inn var stofn­aður til tryggja að aðild­ar­ríki hans virði. Hann segir dóm­stól­inn póli­tískan og telur að Danir ættu að breyta lögum með slíkum hætti að þeir verði ekki lengur bundnir af nið­ur­stöðum MDE. Hefur hann verið gagn­rýndur af kol­legum sínum í dönskum fjöl­miðlum fyrir þessa afstöðu.

„[...] í dag getur þú kallað hvað sem er mann­rétt­indi“

„Við höfum fært okkur frá skýrum og afmörk­uðum mann­rétt­indum inn í aðstæður þar sem í dag getur þú kallað hvað sem er mann­rétt­indi og öll sam­fé­lags­mál hafa mann­rétt­inda­vinkil sem þýðir að spurn­ing­unni getur verið beint að MDE,“ sagði hann í við­tali við Uni­avisen, blað Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla. „Þessi þróun er vafasöm. Að hluta af því að hún dregur úr dönsku lýð­ræði með því að færa póli­tískt vald frá Danmörku til dóm­stóls sem flest okkar vita lítið um. Að hluta af því að það gerð­ist án umræðu um hvort ætti að gera það.“

Íslenska ríkinu endurtekið dæmt í óhag hjá MDE

Lögmenn sem Stundin ræddi við telja það sér­stakt að á afmæl­is­við­burði Hæsta­réttar hafi verið fjallað með slíkum hætti um MDE og þá sér­stak­lega að yfir­lýstur and­stæð­ingur aðildar Dana að rétt­inum hafi flutt erindi. Á und­an­förnu ári hefur MDE ítrekað dæmt íslenska rík­inu í óhag vegna brota á tján­ing­ar­frelsi blaða­manna og vegna órétt­látar máls­með­ferðar, meðal ann­ars í Al Thani og Exeter mál­unum svoköll­uðu, auk Lands­rétt­ar­máls­ins. Með boð­inu hafi Hæsti­réttur verið að upp­hefja sjón­ar­mið Andersen og gagn­rýni hans á hlut­verk MDE, sem mörgum í íslenska rétt­ar­kerf­inu sé farið að þykja full afskipta­samur.

Í svari Hæsta­réttar við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar kemur fram að Þorgeir Örlygg­son, for­seti Hæsta­réttar, Helgi I. Jónsson, frá­far­andi vara­for­seti hæsta­réttar og Þor­steinn A. Jónsson skrif­stofu­stjóri gerðu boðs­list­ann á við­burð­inn með aðstoð fleiri starfs­manna. Þorgeir og Helgi tóku ákvörðun um það hvernig dag­skránni yrði háttað.

Á sam­kom­una var boðið öllum starfs­mönnum Hæsta­réttar, for­seta Íslands, ráð­herrum, þing­mönnum, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­urum, for­setum æðstu dóm­stóla Norð­ur­landa, sendi­herrum erlendra ríkja með búsetu á Íslandi, for­seta EFTA dóm­stóls­ins, íslenska dóm­ar­anum í Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu, öllum alþing­is­mönnum, dóm­urum Lands­réttar, hér­aðs­dóm­urum, aðstoð­ar­mönnum dóm­ara í Lands­rétti og hjá hér­aðs­dóm­stólum, rík­is­sak­sókn­ara og sak­sóknurum hjá rík­is­sak­sókn­ara, hér­aðs­sak­sókn­ara og sak­sóknurum hjá hér­aðs­sak­sókn­ara, lög­reglu­stjórum, sýslu­mönnum, ráðu­neyt­is­stjórum, skrif­stofu­stjórum í dóms­mála­ráðu­neyti, rík­is­lög­manni og lög­mönnum hjá rík­is­lög­manni, umboðs­manni Alþingis og lög­fræð­ingum hjá umboðs­manni, lekt­orum, dós­entum og pró­fess­orum við laga­deild Háskóla Íslands og laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík, um 50 lög­mönnum, stjórn lög­fræð­inga­fé­lags Íslands, stjórn Ákærenda­fé­lags Íslands, rit­nefnd hátíð­ar­rits Hæsta­réttar í til­efni af 100 ára afmæli rétt­ar­ins, rík­is­end­ur­skoð­enda, skrif­stofu­stjóra Alþingis, for­seta­rit­ara, stjórn Hins íslenska bók­mennta­fé­lags, fyrr­ver­andi rík­is­sak­sóknurum og nokkrum fleiri ein­stak­lingum. Kostn­aður við við­burð­inn liggur ekki fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár