Rannsóknin á Samherjamálinu: Norska efnahagsbrotadeildin gagnrýnd harkalega

Mikil umræða hefur verið í Noregi um að efna­hags­brota­deildin Ökokrim geti ekki sinnt eft­ir­lits- og rann­sókn­ar­hlut­verki sínu. Deildin hefur Sam­herj­a­málið til rann­sókna út af mögu­legu pen­inga­þvætti í gegnum DNB. Svipuð gagn­rýni hefur verið uppi á Íslandi.

Rannsóknin á Samherjamálinu: Norska efnahagsbrotadeildin gagnrýnd harkalega
Norska efna­hag­brota­deilin gagn­rýnd Norska efna­hags­brota­deildin Ökokrim hefur verið gagn­rýnd harð­lega í norskum fjöl­miðlum síð­ustu vik­urnar fyrir að sinna ekki hlut­verki sínu í pen­inga­þvætt­is­málum. Ökokrim rann­sakar nú Sam­herj­a­málið. Á mynd­inni má sjá starf­andi og fyrr­ver­andi for­stjóra Samherja, Björgólf Jóhanns­son og Þorstein Má Bald­vins­son. Mynd: Vísir/Sigurjón

Norska efna­hags­brota­deildin Ökokrim, sem nú rann­sakar pen­inga­þvætt­is­hluta Sam­herj­a­máls­ins í Namibíu, er gagn­rýnd harka­lega í norskum fjöl­miðlum fyrir aðgerða­leysi í málum sem varða pen­inga­þvætti. Norskir bankar senda mörg til­felli um athuga­verðar milli­færslur á pen­ingum eða meint pen­inga­þvætti til Ökokrim en lítið kemur út úr rann­sókn­unum. 

Í fyrra fékk Ökökrim 11.564 til­kynn­ingar um athuga­verðar milli­færslur frá norskum bönkum, milli­færslur frá Samherja til félags­ins Cape Cod í skatta­skjól­inu Marshall-eyjum er eitt af þessum til­fellum, en ein­ungis tólf til­felli voru send áfram í rann­sókn hjá lög­regl­unni í Noregi. 

Ekki hefur spurst meira af rann­sókn­inin á Samherja hjá Ökökrim eftir að emb­ættið gaf það út að fjár­magnstil­færslur Samherja í gegnum DNB væru til rann­sóknar þar á bæ eftir umfjall­arnir Stund­ar­innar, Kveiks, Al Jazeera og Wikileaks í nóv­em­ber í fyrra um mútu­greiðslur Samherja í Namibíu og fjár­magns­flutn­inga víða um lönd.

Hluti af gagn­rýn­inni á Ökokrim kemur frá fyrr­ver­andi yfir­manni pen­inga­þvætt­is­rann­sókna hjá DNB bank­anum, Roar Østby, sem hætti í bank­anum fyrir jól en hann hefur sagt að það þjóni engum til­gangi að láta emb­ættið vita af athuga­verðum milli­færslum. „Það þjónar engum til­gangi að hringja í Økokrim,“ sagði hann í við­tali við Dagens Nær­ingsliv þann 23. jan­úar.

„Það þjónar engum til­gangi að hringja í Økokrim“ 

Skortur á fjár­magniStarf­andi for­stjóri Ökokrim, Hedvig Moe, segir að skortur á fjár­magni hamli rann­sóknum emb­ætt­is­ins á pen­inga­þvætti.

Einungis 17 vinna við peningaþvætti

Starf­andi for­stjóri Ökokrim, Hedvig Moe, svarar fyrir þessa gagn­rýni í Dagens Nær­ingsliv í dag og bendir á að hjá emb­ætt­inu starfi ein­ungis 17 manns sem vinna við rann­sóknir á pen­inga­þvætti og að emb­ættið kom­ist hrein­lega ekki yfir meira en það gerir. Til sam­an­burðar starfa 400 manns við eft­ir­lit með pen­inga­þvætti í bara DNB-bank­anum, sem er ein­ungis einn af bönkum Noregs en jafn­framt sá stærsti.

Í við­tal­inu segir Hedvig Moe að Ökokrim geti ein­fald­lega ekki keppt við eink­að­ila eins og banka þegar kemur að mann­afla sem vinnur við pen­inga­þvætt­is­rann­sóknir og að þar af leið­andi geti hún skilið að litið sé á emb­ættið sem flösku­háls í slíkum rann­sóknum því bank­arnir hafi ein­fald­lega yfir að ráða svo miklu fleiri starfs­mönnum sem sendi svo mik­inn fjölda mála til emb­ætt­is­ins sem það svo hefur ekki mann­afla til að sinna. „Við sjáum auð­vitað að það er mik­ill munur á þeim fjár­munum sem lög­reglan hefur yfir að ráða og eft­ir­lits­að­ilar, ekki síst er mun­ur­inn mik­ill á milli lög­regl­unnar og eink­að­ila. Þegar lög­reglan hefur minna fjár­magn en eft­ir­lits­að­ilar þá getur ein­hver litið á okkur sem flösku­háls,“ segir Hedvig Moe.

„Við gerðum það sem við gátum með það sem við höfð­um“

Svipuð gagnrýni á Íslandi

Varnir og aðgerðir Íslands gegn pen­inga­þvætti hafa verið lélegar í gegnum tíð­ina og leiddi þetta meðal ann­ars til þess að Ísland var sett á gráa lista FATF (Financial Action Task Force) á síð­asta ári. Aðeins einn maður á skrif­stofu Rík­is­lög­reglu­stjóra sá um þennan mála­flokk allt fram til árs­ins 2015 þegar eft­ir­lit með pen­inga­þvætti var fært yfir til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara. Í dag starfa átta hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara við eft­ir­lit gegn pen­inga­þvætti, sam­an­borið við til dæmis sautján hjá norska Ökokrim. 

Fyrr­ver­andi æðsti yfir­maður efna­hags­brota­rann­sókna á Íslandi, Helgi Magnús Gunn­ars­sonar, hefur sagt að lít­ill áhugi hafi verið á því að efla rann­sóknir á efna­hags­brotum á Íslandi á þeim tíma sem hann stýrði mála­flokknum hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, 2007 til 2010.

„Stjórn­mála­menn réðu þessu eins og oft­ast með ákvörð­unum sínum um fjár­veit­ing­ar. Það hafði eng­inn áhuga á að leggja manni lið í þessu þegar eftir því var leit­að. Menn sem læra allt sem þeir vita um lög­gæslu af því að horfa á amer­íska löggu­þætti, hafa fullan skiln­ing ef það þarf að kaupa riffla eða annan búnað fyrir sér­sveit, en engan þegar skiln­ing­ur­inn kallar á vits­muna­lega þekk­ingu og þeir þurfa að lesa sér til. Þetta átti við um rann­sóknir efna­hags­brota yfir það heila. Svo allt í einu vökn­uðu menn við hrunið og fóru að skilja að kannski gætu refsilaga­brot í atvinnu­líf­inu haft afleið­ingar jafn vel fyrir þá sjálfa. En að ein­hver hafi haft áhuga á að hlusta á okkur sem höfðum á þessu þekk­ingu, það var ekki. Við gerðum það sem við gátum með það sem við höfð­um,“ hefur vef­mið­ill­inn Kjarninn meðal ann­ars haft eftir Helga Magnúsi í umfjöll­un­unum sínum um slæ­legt eft­ir­lit með pen­inga­þvætti á Íslandi. 

„Það er orðið full­mannað hjá okkur í þessum mála­flokki, 8 starfs­menn“ 

8 starfs­menn í pen­inga­þvætt­inu8 starfs­menn vinna nú við eft­ir­lit með pen­inga­þvætti hjá emb­ætti hér­aðs­sa­kókn­ara sem Ólafur Hauksson stýrir.

Tikynningar meira en tífaldast

Í svörum sem Stundin hefur birt frá Ólafi Hauks­syni, hér­aðs­sak­sókn­ara í Reykja­vík og áður sér­stökum sak­sókn­ara, kemur fram að mikil aukn­ing hafi verið í til­kynn­ingum um meint pen­inga­þvætti á Íslandi á milli áranna 2016 og 2018. Árið 2015 voru þessar til­kynn­ingar 158, 2016 voru þær 655 tals­ins en árið 2018 voru þær orðnar 1.203.

Í fyrra voru til­kynn­ing­arnar orðnar á milli 1.900 og 2.000 segir Ólafur í sam­tali við Stundina. Því er um að ræða meira em tíföldun á til­kynn­ingum um meint pen­inga­þvætti á Íslandi á árunum 2015 til 2019 og á sama hefur átt sér stað átt­földun í fjölda þeirra starfs­manna sem sinna þessum mála­flokki hjá efir­lits­að­ilum.

„Það er orðið full­mannað hjá okkur í þessum mála­flokki, 8 starfs­menn,“ segir Ólafur Hauksson. Hann segir að unnið sé að því í sam­starfi við eft­ir­lits­að­ila með pen­inga­þvætti á Íslandi, meðal ann­ars bönk­unum, að koma upp sam­ræmt tölvu­kerfi sem auð­velda muni að til­kynna um meint pen­inga­þvætti í land­inu. Ólafur segir að ráð­gert sé að taka þetta tölvu­kerfi í notkun í apríl. 

Þessar tölur benda því til auk­innar með­vit­undar um pen­inga­þvætti í sam­fé­lag­inu og eins að til­kynn­inga­skyldir aðilar eins og bankar séu meira á tánum gagn­vart meintum brotum sem fela í sér mögu­legt pen­inga­þvætti. Þegar litið er til þess að ein­ungis einn starfs­maður sinnti eft­ir­liti með pen­inga­þvætti á Íslandi árið 2015 þá má segja að ýmis­legt hafi gerst í mála­flokknum á liðnum árum því nú eru þeir átta.

Rannsókn á Sam­herj­a­mál­inu stendur nú yfir hjá emb­ætti hér­að­sak­sókn­ara í Reykja­vík en ekk­ert hefur spurst út um inn­tak rann­sókn­ar­innar og að hverju hún bein­ist, hvort verið sé að rann­saka mút­urnar í Namibíu og eða fjár­magns­flutn­inga Samherja sem gætu hafa falið í sér pen­inga­þvætti eða eftir atvikum einnig aðra þætti í starf­semi útgerð­ar­innar. 

Út frá fréttum um rann­sóknir á pen­inga­þvætti í Noregi og Íslandi er hins vegar alveg ljóst að yfir­völd í báðum löndum hafa glímt við sams konar vanda­mál í rann­sóknum sínum á pen­inga­þvætti. Noregur og Ísland gera enn það sem löndin geta með það sem þau hafa svo vísað sé til orða Helga Magnúsar og reynt er að berja í brest­ina í vörnum gegn pen­inga­þvætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár